Kjörsókn hjá FG 56% á hádegi
Fréttir|22. október 2020

Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning FG stendur yfir til föstudags.
Alls hafa um 56% félaga í Félagi grunnskólakennara greitt atkvæði um nýjan kjarasamning. Tölurnar eru frá kl. 12 á hádegi í dag, fimmtudag.
Atkvæðagreiðslan stendur yfir til klukkan 11:00 föstudaginn 23. október.