Kjörsókn hjá FG 11 prósent á hádegi

Rétt rúmur sólarhringur er eftir af kosningu í stjórn, samninganefnd, skólamálanefnd og kjörnefnd Félags grunnskólakennara.
Aðeins 11,25 prósent félagsmanna Félags grunnskólakennara höfðu greitt atkvæði í kosningum félagsins á hádegi í dag. Kosið er til stjórnar, samninganefndar, skólamálanefndar og kjörnefndar FG.
- Atkvæðagreiðslan hófst á þriðjudag í síðustu viku og lýkur á slaginu klukkan 14 á morgun, þriðjudaginn 31. maí 2022.
- Kosið er á Mínum síðum á vef KÍ.
- Frétt um tilhögun atkvæðagreiðslunnar
Frambjóðendur tæplega fjörutíu talsins
Kynningarefni frambjóðenda er að finna sérstakri síðu hér á vefnum.
Frambjóðendur til stjórnar í stafrófsröð
- Anna Guðrún Jóhannesdóttir, kennari í Glerárskóla
- Birna Gunnlaugsdóttir, umsjónarkennari í Breiðholtsskóla
- Eva Káradóttir, kennari í Grunnskólanum í Hveragerði
- Geirlaug Ottósdóttir, kennari í Álftamýrarskóla
- Hreiðar Oddsson, kennari í Álfhólsskóla
- Íris Árný Magnúsdóttir, sérkennari í Vallaskóla
- Jens Guðjón Einarsson, kennari í Stóru-Vogaskóla
- Jón Ingi Gíslason, formaður Kennarafélags Reykjavíkur
- Kolbrún Guðmundsdóttir, kennari í Sunnulækjarskóla
- Kristín Björnsdóttir, umsjónarkennari í Sunnulækjarskóla
- Lára Guðrún Agnarsdóttir, kennari í Austurbæjarskóla
- Lilja Margrét Möller, umsjónarkennari í Austurbæjarskóla
- Sigurður Freyr Sigurðarson (Bibbi), umsjónarkennari í Hlíðarskóla
- Svava Þ. Hjaltalín, kennari í Giljaskóla
- Örlygur Þór Helgason, sérkennari í Kvíslarskóla
Kosnir verða sex aðalmenn og fimm varamenn
Frambjóðendur í samninganefnd FG eru í stafrófsröð
- Eðvarð Hilmarsson, umsjónarkennari í Fellaskóla
- Eygló Karlsdóttir, kennari í Grundaskóla
- Eva Káradóttir, kennari í Grunnskólanum í Hveragerði
- Guðrún Sólveig Ágústsdóttir, umsjónarkennari í Fellaskóla
- Hreiðar Oddsson, kennari í Álfhólsskóla
- Kristján Arnar Ingason, umsjónarkennari í Fellaskóla
- Sigfús Aðalsteinsson, umsjónarkennari í Giljaskóla
- Þóra Kristinsdóttir, umsjónarkennari í Vesturbæjarskóla
- Örlygur Þór Helgason, sérkennari í Kvíslarskóla
Kosnir verða fimm aðalmenn og fimm varamenn
Frambjóðendur til skólamálanefndar í stafrófsfröð
- Árný Jóna Stefánsdóttir, umsjónarkennari í Kópavogsskóla
- Dagný Rósa Úlfarsdóttir, umsjónarkennari í Höfðaskóla
- Guðbjörg Íris Atladóttir, umsjónarkennari í Rimaskóla
- Guðrún Hannesdóttir, kennari í Austurbæjarskóla
- Jón Hjörtur Sigurðarson, kennari í Flóaskóla
- Kristín Björnsdóttir, umsjónarkennari í Sunnulækjarskóla
- Lára Guðrún Agnarsdóttir, kennari í Austurbæjarskóla
- Pollý Rósa Brynjólfsdóttir, sérkennari í Brekkuskóla
- Svava Þ. Hjaltalín, kennari í Giljaskóla
- Úlfhildur H. Guðbjartsdóttir, kennari í Kvíslarskóla
- Þorbjörg Guðumdsdóttir, kennari í Akurskóla
- Þorbjörg Ólafsdóttir, umsjónarkennari í Síðuskóla
- Þórey Björk Hjaltadóttir, umsjónarkennari í Ölduselsskóla
Kosnir verða sex aðalmenn og sex varamenn. Atkvæðamagn ræður hvaða sæti hver frambjóðandi fær.
Frambjóðendur til kjörnefndar í stafrófsröð
- Elín Guðfinna Thorarensen, umsjónarkennari í Ölduselsskóla
- Erla Rán Kjartansdóttir, umsjónarkennari í Brekkuskóla
- Inga Lóa Hannesdóttir, umsjónarkennari í Kirkjubæjarskóla
- Páll Erlingsson, umsjónarkennari í Grunnskóla Grindavíkur
- Þórey Björk Hjaltadóttir, umsjónarkennari í Ölduselsskóla
Kosnir verða þrír aðalmenn. Venjan er að kjósa þrjá varamenn en þeir verða tveir að svo stöddu.
Fréttin var uppfærð 26. maí en þá dró Alda Guðrún Áskelsdóttir framboð sitt til stjórnar og samninganefndar til baka.