Kjörsókn hjá FF var um 20 prósent í hádeginu
Fréttir|27. janúar 2026

Kosningar til formanns og stjórnar FF eru í fullum gangi.
Kjörsókn í formannskjöri Félags framhaldsskólakennara var 21,8 prósent klukkan tólf í dag. Aðeins færri höfðu tekið þátt í kjöri til stjórnar FF, eða 18,23 prósent.
Atkvæðagreiðslan hófst í gærmorgun og henni lýkur klukkan tíu á fimmtudagsmorgun.