Kjörsókn 8% í formannskjöri FG
Fréttir|18. janúar 2018

Frambjóðendur til formanns Félags grunnskólakennara eru fimm.
Alls höfðu 8% félagsmanna í Félagi grunnskólakennara greitt atkvæði um formann félagsins klukkan tólf í dag. Atkvæðagreiðslunni lýkur klukkan 14 næstkomandi mánudag, 22. janúar.
Frambjóðendur til formanns Félags grunnskólakennara eru fimm; þeir eru eftirtaldir:
- Hjördís Albertsdóttir
- Kjartan Ólafsson
- Kristján Arnar Ingason
- Rósa Ingvarsdóttir
- Þorgerður Laufey Diðriksdóttir