Kjörsókn 34% hjá FG og 43% hjá FL

Atkvæðagreiðsla meðal félagsmanna í Félagi grunnskólakennara og Félagi leikskólakennara um nýja kjarasamninga er í fullum gangi.
Alls höfðu 34,5 prósent félagsmanna í FG greitt atkvæði um nýjan kjarasamning klukkan tólf í dag. Kjörsókn er ívið betri hjá Félagi leikskólakennara en þar höfðu 43,09 prósent greitt atkvæði á hádegi.
Atkvæðagreiðslu um báða samninga lýkur klukkan tólf á morgun, föstudag.
Samninganefndir FG og FL skrifuðu hvor um sig undir kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga 26. maí síðastliðinn.
Félagsmenn FG sem starfa hjá sveitarfélögum landsins hafa atkvæðisrétt í kosningum um nýja kjarasamninga FG.
Félagsmenn FL sem starfa hjá sveitarfélögum landsins hafa atkvæðisrétt í kosningum um nýja kjarasamninga FL.
- Hér má nálgast frekari upplýsingar um kosningarnar og atkvæðisrétt.
- Hér er hægt að kynna sér samningana.
Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á vef KÍ. Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli eða rafrænum skilríkjum.