Kjörnefnd FG auglýsir eftir framboðum til trúnaðarstarfa

Frestur til að skila inn framboði rann út á miðnætti 28. desember 2017. Nýr formaður tekur við embætti á aðalfundi FG sem fer í Borgarnesi í maí.
Nýr formaður Félags grunnskólakennara verður kosinn dagana 17. til 22. janúar næstkomandi. Frestur til að skila inn framboði rann út á miðnætti 28. desember 2017. Nýr formaður tekur við embætti á aðalfundi FG sem fer í Borgarnesi í maí.
Fimm eru í framboði til formanns; Hjördís Albertsdóttir, Kjartan Ólafsson, Kristján Arnar Ingason, Rósa Ingvarsdóttir og Þorgerður Laufey Diðriksdóttir.
Kjörnefnd FG auglýsir eftir framboðum til annarra trúnaðarstarfa á vegum félagsins. Þeir sem hyggjast gefa kost á sér þurfa að senda formlega tilkynningu til kjörnefndar FG, kjornefndfg@ki.is, fyrir miðnætti 24. janúar 2018.
Rafræn atkvæðagreiðsla í stjórn og önnur trúnaðarstörf í FG fer fram dagana 7. til 12. febrúar 2018.
Kosið verður í eftirfarandi embætti:
- Stjórn 11 fulltrúar (6 aðal og 5 vara)
- Samninganefnd 10 fulltrúar (5 aðal og 5 vara)
- Skólamálanefnd 12 fulltrúar (6 aðal og 6 vara)
- Kjörnefnd 6 fulltrúar (3 aðal og 3 til vara)
Atkvæðamagn ræður því hverjir hljóta kjör sem aðalmenn og hverjir verða varamenn. Kjörtímabil er frá aðalfundi 2018 til aðalfundar 2022.
Allir frambjóðendur (líka þeir sem eru í trúnaðarstörfum núna og hyggjast gefa kost á sér aftur) skulu senda tölvupóst á kjörnefndfg@ki.is.
Í póstinum skal kom fram
- nafn,
- kennitala,
- starfsheiti,
- vinnustaður
- mynd af viðkomandi í viðhengi.
Ekki er heimilt að gefa kost á sér eftir að framboðsfresti lýkur. Lög FG og hlutverk stjórnar og nefnda er hægt að kynna sér hér.