Kjaraviðræðum vísað til ríkissáttasemjara

Fréttir|2. maí 2014

Skólastjórafélag Íslands (SÍ) hefur ákveðið að vísa kjaraviðræðum við Samband íslenskra sveitarfélaga til ríkissáttasemjara til að fá samninganefnd Sambands íslenskara sveitarfélaga (SNS) að samningaborðinu.

Kjaraviðræður SÍ við SNS hafa staðið yfir síðan 21. nóvember 2013 en þá var gerð viðræðuáætlun. Samningar runnu út 31. janúar 2014. Haldnir hafa verið 6 stuttir fundir frá því í nóvember 2013, síðasti fundurinn var 20. mars 2014.

Samninganefnd SÍ lagði fram markmið og leiðir í kjarasamningum á fundi í desember 2013 og óskaði eftir að farið yrði í samvinnu um þau markmið og leiðir. Samninganefnd sambandsins var ekki tilbúin í þá vinnu en lýsti yfir vilja til að gera samning til eins árs á fundi í febrúar með það að markmiði að gera lengri samning að ári. Skólastjórafélagið lagði því fram kröfugerð vegna samnings til eins árs á fundi í lok febrúar. Viðræður hafa verið ágætar en lítil sem engin viðbrögð frá hendi samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

„SNS hefur ekki gefið sér tíma til að svara þessari kröfugerð okkar og frestað áætluðum fundum í mars þar sem þau vilja ná fram samningum við Félag grunnskólakennara áður en kemur að Skólastjórafélagi Íslands. Við það sættum við okkur ekki og vísum deilunni því“ segir Svanhildur María Ólafsdóttir, formaður SÍ um stöðu mála.