Kjaratölfræðinefnd: Vorskýrslan komin út

Kjarasamningar til ársins 2028 hafa verið undirritaðir fyrir nær allt launafólk landsins. Síðasti stóri samningurinn í lotunni var við KÍ og er nokkuð frábrugðinn öðrum. Fjárhagsstaða heimilanna er sterk heilt yfir þrátt fyrir að háir vextir og verðhækkanir hafi þrengt að.
Ný vorskýrsla Kjaratölfræðinefndar (KTN) var kynnt á fundi í húsnæði Ríkissáttasemjara í Borgartúni nú í morgun. Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ og Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri SA ávörpuðu svo fundinn áður en Hrafnhildur Arnkelsdóttir, formaður KTN og Arnaldur Sölvi Kristjánsson, sérfræðingur nefndarinnar fóru yfir helstu niðurstöður skýrslunnar. Fundarstjóri var Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari.
Í skýrslunni er meðal annars að finna umfjöllun um launaþróun á almennum og opinberum vinnumarkaði og upplýsingar um kjarasamninga sem gerðir hafa verið í yfirstandandi kjarasamningslotu. Einnig er að finna umfjöllun um launastig, samsetningu launa og launadreifingu árið 2024 auk umfjöllunar um íslenskan vinnumarkað, þróun efnahagsmála og kaupmáttarþróun, en ekki hefur nefndin áður fjallað jafn ítarlega um íslenskan vinnumarkað og nú.
Kjarasamningar
Kjarasamningar til ársins 2028 hafa verið undirritaðir fyrir nær allt launafólk, bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði, í yfirstandandi samningalotu, sem hófst í febrúar 2024. Síðasti stóri samningurinn sem gerður var í lotunni var fordæmalaus sameiginlegur samningur ríkis og sveitarfélaga við öll aðildarfélög Kennarasambands Íslands (KÍ).
Í núverandi samningalotu voru gerðir nærri 250 kjarasamningar á vettvangi aðila Kjaratölfræðinefndar sem tóku til tæplega 189.000 félaga stéttarfélaga.
Almennt var í samningunum farin blönduð leið krónutöluhækkana og prósentuhækkana og eru launahækkanir því hlutfallslega mestar á lægri laun. Athygli vekur að kjarasamningur KÍ er frábrugðinn öðrum samningum sem gerðir voru í lotunni þar sem hann byggði á innanhússtillögu ríkissáttasemjara, sem felur í sér framlengingu á kjarasamningum aðila til ársins 2028 og að unnið verði að virðismatskerfi sem lagt verði til grundvallar launasetningu kennara.
- Finna má sérstaka umfjöllun um kjarasamning KÍ á blaðsíðum 50 og 51 í skýrslunni.
Laun og launaþróun
Regluleg laun allra fullvinnandi á vinnumarkaði voru að meðaltali 845 þúsund krónur árið 2024. Laun hafa hækkað mest á almenna markaðnum. Gruntímakaup hækkaði um 10,2% á almennum markaði á tímabilinu frá janúar 2024 til janúar 2025. Hækkunin nam 5,7% hjá ríki og Reykjavíkurborg og 6,1% hjá sveitarfélögum utan Reykjavíkur. Hér ber þó að taka fram að tvær kjarasamningsbundnar hækkanir komu til framkvæmda á almennum markaði á tímabilinu en aðeins ein á opinberum markaði.
Að teknu tilliti til verðlagsþróunar hafði kaupmáttur grunntímakaups í janúar 2025 aukist um 4,2% frá upphafi samningalotunnar. Á almennum vinnumarkaði var kaupmáttaraukningin 5,3%, hjá ríki og Reykjavíkurborg 1,0% og hjá sveitarfélögum utan Reykjavíkur um 1,4%.
Dreifing launa á almenna markaðnum er mun meiri en hjá hinu opinbera. Áhersla á krónutöluhækkanir í kjarasamningum á undanförnum árum, sem skiluðu hlutfallslega mestri hækkun lægstu launa, leiddi til þess að munur á hæstu og lægstu launum á vinnumarkaði dróst saman á árunum 2019-2022. Á síðustu tveimur árum hefur sú þróun haldið áfram á opinberum vinnumarkaði en lítilsháttar viðsnúningur orðið á almennum markaði.

Hækkun grunntímakaups félaga KÍ
Kjarasamningar allra aðildarfélaga KÍ við sveitarfélög og ríki voru undirritaðir í lok febrúar 2025 og gætir áhrifa af umsömdum hækkunum því ekki innan þess tímabils sem nú er til skoðunar hjá KTN.
Í janúar 2025 kom þó til framkvæmda áfangahækkun í samræmi við innanhústillögu ríkissáttasemjara. Samkvæmt henni hækkaði grunntímakaup hjá félagsmönnum KÍ á tímabilinu janúar 2024 til janúar 2025 hjá ríkinu um 0,9%, hjá sveitarfélögum utan Reykjavíkur um 5,4% og um 5,1% hjá Reykjavíkurborg.
Mikill munur á hækkun grunntímakaups hjá aðildarfélögum KÍ hjá ríki annars vegar og sveitarfélögum og Reykjavíkurborg hins vegar skýrist af ólíkri útfærslu þessara aðila á uppgjöri afturvirkra hækkana í tengslum við áfangasamkomulag við KÍ í lok nóvember 2024. Uppgjör ríkisins fór fram með eingreiðslu sem ekki mælist í launavísitölunni, en sveitarfélögin og Reykjavíkurborg hækkuðu launatöflur sem koma fram í mælingu vísitölunnar.
Hækkun grunnlauna hjá ríkinu á grundvelli fyrri innanhússtillögu ríkissáttasemjara, sem samþykkt var í nóvember, kom ekki til framkvæmda fyrr en kjarasamningar höfðu verið samþykktir. Leiðréttingin kemur því ekki fram hjá ríkinu sem hækkun grunnlauna fyrr en í mars 2025. Þessi munur á útfærslu hafði á endanum ekki áhrif á heildarlaun einstaklinga.
Vægi heildarsamtaka og markaða
Samsetning vinnumarkaðarins hvað vægi heildarsamtaka og markaða varðar gerir það að verkum að sumir hópar hafa meiri áhrif á launaþróun og launastig vinnumarkaðarins í heild sinni. Félagsfólk aðildarfélaga ASÍ vegur alls um helming í gagnasafni Hagstofu Íslands fyrir vísitölu grunntímakaups. Félagsfólk í aðildarfélögum BHM, BSRB og KÍ vegur samanlagt rúman fjórðung í vísitölunni, félagsmenn stéttarfélaga sem ekki eru hluti af heildarsamtökunum fjórum vega um fimmtung og launafólk utan stéttarfélaga um 6%.
Félagsfólk stéttarfélaga innan ASÍ vega mest í vísitölu grunntímakaups á almennum vinnumarkaði (60%). Félagsmenn BHM vega mest hjá ríkinu, eða um þriðjung. Hjá Reykjavíkurborg vegur BSRB mest (37%). Hjá sveitarfélögum utan Reykjavíkur vegur KÍ mest (39%), en lítið sem ekkert hjá ríki og ekkert á almennum markaði.

Efnahagsmál
Í fyrra hægði á efnahagsumsvifum og landsframleiðsla dróst saman um 0,7% í kjölfar mikils vaxtar undanfarin ár. Hóflegum hagvexti er spáð í ár og talið að hagkerfið leiti jafnvægis á næstu árum. Talið er að heildarafkoma hins opinbera verði í jafnvægi árið 2027.
Dregið hefur jafnt og þétt úr verðbólgu þó hægar en væntingar gerðu ráð fyrir. Verðbólga mælist nú 3,8% og verður sennilega nær óbreytt út árið, eða yfir 2.5% um sinn samkvæmt spám, en húsnæðisliðurinn ýtir áfram undir verðbólgu.
Vextir, hækkandi leiguverð og verðhækkanir hafa einnig þrengt að heimilum og aukið sókn í verðtryggð lán. Þrátt fyrir það er fjárhagsstaða heimilanna heilt yfir sterk og vanskil lítil í sögulegu tilliti, meðal annars vegna aukins kaupmáttar ráðstöfunartekna síðustu tvö ár, um 2.7% árið 2023 og 2.8% árið 2024, mun meira en kaupmáttur launa.
Framleiðni vinnuafls hér á landi jókst um 1,5% að meðaltali á ári á tímabilinu 2019–2024 sem er mesti vöxtur á Norðurlöndum. Á árunum 2022–2024 hækkaði launahlutfallið, sem endurspeglar hlutdeild launafólks í verðmætasköpun hagkerfisins, í heild um 1,6 prósentustig en mismikið eftir atvinnugreinum, mest í stóriðju.
Vinnumarkaðsmál
Dregið hefur úr spennu á vinnumarkaði með hægari efnahagsumsvifum. Starfandi fólki á vinnumarkaði fjölgar hægar en verið hefur og færra fólk með erlendan bakgrunn kemur til landsins. Atvinnuástandið er áfram gott og atvinnuþátttaka mikil, þó heldur hafi dregið úr henni, bæði meðal innflytjenda og fólks með íslenskan bakgrunn. Þá hefur dregið úr eftirspurn fyrirtækja eftir starfsfólki og atvinnuleysi hefur aukist lítillega, en verið nokkuð stöðugt síðustu 1-2 ár.
Fjöldi erlendra ríkisborgara sem flytja til landsins sveiflast töluvert eftir efnahags- og atvinnuástandinu. Töluverð fylgni hefur verið á milli hagsveiflna og búferlaflutninga á síðustu tveimur áratugum, þannig að þegar hægist um í efnahagslífinu dregur úr flutningi fólks til landsins. Vísbendingar eru nú um minni búferlaflutninga til landsins.
Þátttaka fólks á vinnumarkaði er nokkuð ólík eftir aldursskeiðum og aðstöðu en heilt yfir hefur hagsveiflan mun meiri áhrif á hlutfall starfandi hjá fólki undir fertugu en þeirra sem eldri eru. Hlutfall starfandi námsmanna hefur aukist talsvert frá aldamótum en hlutfall starfandi öryrkja hefur haldist nokkuð stöðugt.
Hlutfall karla í starfi er almennt hærra en meðal kvenna. Munur á hlutfalli starfandi kvenna og karla er meiri meðal þeirra sem eru með ung börn á framfæri en í öðrum hópum. Þó dregið hafi úr þeim mun á síðustu áratugum og hlutfall starfandi kvenna með ung börn hafi hækkað, er enn mun meiri munur á atvinnuþátttöku kynjanna í þessum hópi en hjá þeim sem ekki hafa börn á framfæri.
