Kjaratölfræðinefnd: Haustskýrslan komin út

Fréttir|1. desember 2025

Nærfellt 260 kjarasamningar hafa verið gerðir í yfirstandandi kjarasamningalotu sem hófst í febrúar 2024. Samningarnir ná til um 190 þúsund manns. Fjallað er um kjarasamninga, launaþróun og efnahagshorfur í nýrri Haustskýrslu Kjaratölfræðinefndar.

Haustskýrsla Kjaratölfræðinefndar (KTN) var kynnt í húsakynnum ríkissáttasemjara í liðinni viku. Í skýrslunni er, sem fyrr, fjallað um kjarasamninga, launaþróun og stöðu efnahags- og vinnumarkaðsmála. Fram kemur í skýrslunni að í yfirstandandi kjarasamningslotu, sem hófst í febrúar 2024, hafi nær 260 kjarasamningar verið gerðir á vettvangi þeirra aðila sem eiga að aðild að kjaratölfræðinefnd. Félagsfólk á kjörskrá stéttarfélaga í þessum samningum er um 190 þúsund talsins. Rúmlega 20 samningar standa eftir en þeir ná til um þrjú þúsund manns. 

Grunntímakaup á almennum markaði hækkaði um 11,9% á tímabilinu frá febrúar 2024 til júní 2025, hjá ríki um 12,2%, hjá Reykjavíkurborg um 12,9% og hjá sveitarfélögum utan Reykjavíkur um 14,3%. Í þeim kjarasamningum sem gerðir hafa verið í samningalotunni var almennt farin blönduð leið krónutöluhækkana og prósentuhækkana og eru samningsbundnar launahækkanir því hlutfallslega mestar á lægri laun en samningar KÍ við ríki og sveitarfélög voru þó frábrugðnir öðrum samningum vegna áherslu á virðismat," segir í skýrslunni. 

Fram kemur að laun allra fullvinnandi á vinnumarkaði voru að meðaltali 889 þúsund krónur í maí síðastliðnum – miðgildi var 807 þúsund krónur. 

„Meðaltal grunnlauna, reglulegra launa og reglulegra heildarlauna voru hæst á almennum markaði í maí 2025, þar á eftir hjá ríkinu og lægst hjá sveitarfélögum. Þegar miðgildi er skoðað eru grunnlaun, regluleg laun og regluleg heildarlaun hins vegar hæst hjá ríkinu. Meiri munur á meðaltali og miðgildi á almennum vinnumarkaði og opinberum markaði endurspeglar mun meiri dreifingu launa á almenna markaðnum en hjá hinu opinbera, bæði hjá ríkinu og hjá sveitarfélögum án Reykjavíkurborgar og hjá Reykjavíkurborg," segir í skýrslunni. 

Efnahags- og vinnumarkaðsmál

„Árið 2024 hægði á efnahagsumsvifum hér á landi . Landsframleiðsla dróst saman um 1,0% í kjölfar mikils vaxtar árin á undan þegar hagkerfið var að jafna sig eftir áhrif heimsfaraldursins. Í nýrri þjóðhagsspá Hagstofu Íslands er gert ráð fyrir 1,7% hagvexti í ár en Seðlabanki Íslands spáir 0,9% hagvexti," segir í skýrslunni. 

Þar segir jafnframt að dregið hafi úr spennu á vinnumarkaði og að starfandi fólki fjölgi nú hægar en áður. „Degið hefur lítillega úr fjölda starfandi í ferðaþjónustu og færra fólk með erlendan bakgrunn kemur til landsins. Atvinnuleysi er áfram lágt og atvinnuþátttaka mikil. Lausum störfum hefur fækkað lítils háttar á þessu ári og færri stjórnendur telja vera skort á starfsfólki. Núna hyggst sami fjöldi stjórnenda fjölga starfsmönnum og fækka, tæp 20%."

Verðbólga mældist 4,3% í október síðastliðnum og segir í skýrslunni að hún hafi verið nokkuð óbreytt frá því í febrúar. „Húsnæðisliður vísitölunnar, sem tekur nú tillit til reiknaðrar leigu auk greiddrar leigu, hefur hækkað umfram verðbólgu að undanförnu, en minna en áður. Gengi krónunnar hefur styrkst á síðustu misserum en verulegur hluti þeirrar styrkingar þó gengið til baka síðustu vikur," segir í skýrslunni. 

Fimm ár frá fyrstu skýrslunni

Nýútgefin haustskýrsla markar tímamót þar sem fimm ár eru liðin frá fyrstu útgáfu kjaratölfræðinefndar haustið 2020. Þessi ellefta skýrsla nefndarinnar hefur sömu markmið og fyrri skýrslur að fyrir liggi áreiðanlegar upplýsingar og sameiginlegur skilningur aðila um laun og efnahag sem nýtast við undirbúning og eftirfylgni kjarasamninga á hverjum tíma. Kjaratölfræðinefnd gefur út tvær skýrslur á ári, að vori og hausti.

 

Við mælum með lestri skýrslunnar.