Kjaratölfræðinefnd gefur út haustskýrslu

Fjárhagsstaða heimila er almennt sterk, segir Kjaratölfræðinefnd.
Núverandi kjaralota hefur staðið síðan í mars 2024 og á tímabilinu hafa um 260 kjarasamningar verið undirritaðir. Þannig hefur verið samið við langstærstan hluta launafólks hér á landi.
Undirritaðir hafa verið kjarasamningar við flest stéttarfélög launafólks, bæði á almennum og opinberum markaði, í yfirstandandi kjarasamningalotu sem hófst í mars árið 2024. Áætlað er að gerðir hafi verið 260 kjarasamningar sem ná til langflests launafólks á vinnumarkaði. Fáum samningum er ólokið. Almennt var samið til fjögurra ára og farin blönduð leið krónutölu- og prósentuhækkana, þar sem hækkun hvers árs var að lágmarki 23.750 árið 2024 eða 3,25% og sama lágmark, eða 3,5%, árlega eftir það. Kjarasamningsbundnar launahækkanir eru því hlutfallslega mestar á lægri laun.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í Haustskýrslu Kjaratölfræðinefndar sem kom út síðastliðinn föstudag.
„Auk launahækkana eru í samningunum ákvæði um skilyrta viðbótarlaunaauka, svo sem kauptaxta- og framleiðniauka á almennum markaði og launatöfluauka á opinberum markaði. Kauptaxtaauki kom til framkvæmda í apríl 2025 (0,58%) og apríl 2026 (0,06%) og launatöfluauki árið 2025 hjá BHM (1,24%) og BSRB (0,75%) hjá ríki. Samningar KÍ við ríki og sveitarfélög voru frábrugðnir öðrum samningum þar sem þeir byggja á innleiðingu virðismatskerfis og fela í sér sérstaka innáborgun gerða á grundvelli samkomulags um virðismatsvegferð kennara,“ segir orðrétt í skýrslunni.
Sundurliðuð gögn KTN um launaþróun eftir mörkuðum byggja á launarannsókn Hagstofu Íslands og liggja fyrir frá upphafi núverandi lotu fram til júní 2026.
Hækkun vísitölu grunntímakaups mældist 18,4% á almennum markaði á tímabilinu febrúar 2024 til júní 2026, 19,6% hjá ríki, 18,8% hjá Reykjavíkurborg og 20,1% hjá sveitarfélögum utan Reykjavíkur. Á tímabilinu komu þrjár samningsbundnar launahækkanir til framkvæmda þvert á vinnumarkaðinn.
Hækkun grunntímakaups á vinnumarkaðinum í heild mældist 18,7% frá febrúar 2024 til júní 2026, en almennt verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs hækkaði um 12,2% á sama tíma. Kaupmáttur grunntímakaups jókst því um 5,8%.
Regluleg laun fullvinnandi á vinnumarkaði mældust að meðaltali 935 þúsund krónur í maí 2026 og miðgildi reglulegra launa 843 þúsund krónur.
Staða heimila almennt sterk
Hagvöxtur hefur verið lítill síðustu ár og verðbólga hefur reynst þrálátari en spár gerðu ráð fyrir og mældist 5,9% í október síðastliðnum. Horfur um verðbólgu ráðast að verulegu leyti af þróun stríðsátaka og áhrifum þeirra á alþjóðlegt orkuverð.
Fjárhagsstaða heimila er almennt sterk. Kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann hefur aukist þrátt fyrir verðbólgu og hærri vexti, og skuldir heimila hafa lækkað sem hlutfall af ráðstöfunartekjum.
