Kjarasamningur KÍ og Menntaskóla Borgarfjarðar undirritaður

Fréttir|16. júní 2020

Samningurinn er sambærilegur og hjá öðrum félagsmönnum KÍ í framhaldsskólum.

Kennarasamband Íslands, fyrir hönd félagsmanna í Félagi framhaldsskólakennara og Félagi stjórnenda í framhaldsskólum, hefur undirritað samkomulag um endurnýjun kjarasamnings við Menntaskóla Borgarfjarðar. 

Skrifað var undir samkomulagið í gær og var það sögulegt að því leyti að undirritun fór fram með rafrænum hætti. Hinn nýi samningur er sambærilegur þeim samningum sem nú gilda hjá öðrum félagsmönnum KÍ í framhaldsskólum. 

Atkvæði verða greidd um hinn nýja samning í vikunni og hefst atkvæðagreiðslan þriðjudaginn 16. júní kl. 14:00. Henni lýkur föstudaginn 19. júní kl. 14:00. Atkvæðisrétt hafa félagsmenn í Félagi framhaldsskólakennara og Félagi stjórnenda í framhaldsskólum sem starfa hjá Menntaskóla Borgarfjarðar.

Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á vef Kennarasambands Íslands.