Kjarasamningur KÍ og Fjölmenntar samþykktur

Fréttir|2. júní 2014

Félagsmenn í Félagi framhaldsskólakennara sem starfa hjá Fjölmennt hafa samþykkt nýjan kjarasamning milli KÍ og Fjölmenntar. Samningurinn var undirritaður á miðvikudag í síðustu viku og er hann sambærilegur samningum annarra félagsmanna KÍ í framhaldsskólum.

Rafræn atkvæðagreiðsla um nýja samninginn stóð yfir frá síðastliðnum miðvikudegi til klukkan 15 í dag, 2. júní.

Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar eru þessar:

  • Á kjörskrá 17 
  • Atkvæði greiddu 14 eða 82,4%
  • Já sögðu 9 eða 64,3%
  • Nei sögðu 4 eða 28,6%
  • Auðir 1 eða 7,1%