Kjarasamningur grunnskólakennara í höfn
Fréttir|25. maí 2018

Samningurinn gildir til 30. júní 2019 og verður efni hans kynnt félagsmönnum eftir helgi.
Félag grunnskólakennara og Samband íslenskra sveitarfélaga skrifuðu undir kjarasamning á fimmta tímanum í dag. Undirritunin fór fram í húsakynnum ríkissáttasemjara en þar hafa málsaðilar fundað stíft að undanförnu. Þorgerður Laufey Diðriksdóttir, formaður FG, fór fyrir viðræðunefndinni en hún tók formlega við embætti formanns FG síðastliðinn föstudag.
Félag grunnskólakennara hefur verið án samnings síðan í desember á síðasta ári. Samningurinn gildir til 30. júní 2019 og verður efni hans kynnt félagsmönnum eftir helgi.

Þorgerður Laufey Diðriksdóttir, formaður FG, og Inga Rún Ólafsdóttir, formaður samninganefndar sveitarfélaga, handsala samninginn.