Kjarasamningur FT samþykktur

Fréttir|15. desember 2020

Um 94% þeirra sem greiddu atkvæði samþykktu samninginn.

Félagar í Félagi kennara og stjórnenda í tónlistarskólum hafa samþykkt breytingar og framlengingu á samningi félagsins við Samband íslenskra sveitarfélaga. Allsherjaratkvæðagreiðsla um samninginn hófst síðastliðinn föstudag, 11. desember og lauk kl. 14 í dag, 15. desember 2020.

Úrslit atkvæðagreiðslunnar voru svohljóðandi:

Á kjörskrá var 481
Atkvæði greiddu 242 eða 50,31%
Já sögðu 228 eða 94,21%
Nei sögðu 9 eða 3,72%
Auðir 5 eða 2,07%


Breytingar og framlenging á kjarasamningi Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum og Sambands íslenskra sveitarfélaga voru undirritaðar hjá ríkissáttasemjara 9. desember síðastliðinn. Kjarasamningurinn gildir frá 1. september 2020 til 31. desember 2021. Hægt er að kynna sér samninginn hér.