Kjarasamningur FSL samþykktur
Fréttir|15. september 2014
Félagar í Félagi stjórnenda leikskóla hafa samþykkt nýgerðan kjarasaming við Samband íslenskra sveitarfélaga. Allsherjaratkvæðagreiðsla um samninginn hófst síðastliðinn fimmtudag, 11. september og lauk á hádegi í dag, 15. september 2014.
Úrslit atkvæðagreiðslunnar voru svohljóðandi:
- Á kjörskrá voru 428
- Atkvæði greiddu 287 eða 67,1%
- Já sögðu 200 eða 69,7%
- Nei sögðu 80 eða 27,9%
- Auðir 7 eða 2,4%
Kjarasamningur Félags stjórnenda leikskóla og Sambands íslenskra sveitarfélaga var undirritaður hjá Ríkissáttasemjara 2. september síðastliðinn. Kjarasamingurinn gildir frá 1. maí 2014 og er til þrettán mánaða. Hægt er að kynna sér samninginn hér.