Kjarasamningur FL samþykktur í einkareknum leikskólum

Félagar FL, sem starfa í einkareknum leikskólum, hafa samþykkt nýja kjarasamninga.
Úrslit liggja fyrir í atkvæðagreiðslum meðal félagsmanna Félags leikskólakennara sem starfa hjá Kennarafélaginu ehf., Waldorfsskólanum Sólstöfum og Samtökum sjálfstæðra skóla. Kjarasamningarnir voru undirritaðir hjá fyrrnefndum rekstraraðilum 19. mars síðastliðinn. Þeir voru í öllum tilvikum samþykktir með yfirgnæfandi meirihluta.
Hinn nýi samningur tryggir félagsmönnum FL sem starfa í fyrrnefndum leikskólum sama kjarasamning og var undirritaður var 25. febrúar síðastliðinn. Samningurinn gildir til 31. mars 2028.
Niðurstöðurnar eru þessar
Leikskólinn Aðalþing
Úrslit í allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félaga í Félagi leikskólakennara um samkomulag um kjarasamning milli Kennarasambands Íslands vegna FL og Kennarafélagsins ehf, sem skrifað var undir 19. mars 2025.
Atkvæðagreiðsla stóð dagana 21. mars – 23. mars 2025.
- Á kjörskrá voru 25
- Atkvæði greiddu 10 eða 40%
- Já sögðu 10 eða 100%
- Nei sögðu 0 eða 0%
- Auðir 0 eða 0%
Kennarafélagið ehf. rekur leikskólann Aðalþing í Kópavogi.
Samtök sjálfstæðra skóla
Úrslit í allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félaga í Félagi leikskólakennara um samkomulag um kjarasamning milli Kennarasambands Íslands vegna FL og Samtaka sjálfstæðra skóla, sem skrifað var undir 19. mars 2025.
Atkvæðagreiðsla stóð dagana 21. mars – 23. mars 2025.
- Á kjörskrá voru 352
- Atkvæði greiddu 102 eða 28,98%
- Já sögðu 99 eða 97,06%
- Nei sögðu 3 eða 2,94%
- Auðir 0 eða 0,00%
Innan vébanda Samtaka sjálfstæðra skóla eru um tuttugu leikskólar í Reykjavík, Garðabæ, Hafnafirði, Kópavogi Reykjanesbæ, Garðinum og á Keflavíkurflugvelli.
Waldorfleikskólinn Sólstafir
Úrslit í allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félaga í Félagi leikskólakennara um samkomulag um kjarasamning milli Kennarasambands Íslands vegna FL og Waldorfleikskólans Sólstafa, sem skrifað var undir 19. mars 2025.
Atkvæðagreiðsla stóð dagana 21. mars – 23. mars 2025.
- Á kjörskrá voru 6
- Atkvæði greiddu 3 eða 50%
- Já sögðu 3 eða 100%
- Nei sögðu 0 eða 0%
- Auðir 0 eða 0%