Kjarasamningur FL og SSSK samþykktur

Fréttir|6. júlí 2022

Níu af hverjum tíu félagsmönnum FL sem starfa innan vébanda Samtaka sjálfstæðra skóla (SSSK) hafa samþykkt nýgerðan kjarasamning í atkvæðagreiðslu.

Nýgerður kjarasamningur Félags leikskólakennara og Samtaka sjálfstæðra skóla hefur verið samþykktur í atkvæðagreiðslu. Niðurstaðan var afgerandi en 90 prósent þeirra sem greiddu atkvæði sögðu já í atkvæðagreiðslunni. 

Skrifaði var undir samninginn 28. júní síðastliðinn og er gildistíminn frá 1. janúar 2022 til 31. mars 2023. Atkvæðagreiðsla fór fram dagana 4. til 6. júlí 2022. 

Niðurstaðan er eftirfarandi

  • Á kjörskrá voru 296
  • Atkvæði greiddu 59 eða 19,93%
  • Já sögðu 53 eða 89,83%
  • Nei sögðu 4 eða 6,78%
  • Auðir voru 2 eða 3,39%

Hinn nýi samningur tryggir félagsmönnum Félags leikskólakennara, sem starfa í skólum innan SSSK, sama kjarasamning og gerður var við sveitarfélögin á vordögum. Á þetta við um allar launahækkanir, fylgiskjöl, samkomulag um afhendingu gagna og samstafsnefndarbókanir. Bæði þær samstarfsnefndarbókanir sem búið er að afgreiða sem og þær samtarfsnefndarbókanir sem mögulega verða gerðar á samningstímanum.

Frétt um samninginn 29. júní 2022