Kjarasamningur FF og FS samþykktur
Kjarasamningur Félags framhaldsskólakennara og Félags stjórnenda í framhaldsskólum vegna félagsmanna í ríkisreknum framhaldsskólum hefur verið samþykktur í allsherjaratkvæðagreiðslu.
Kjarasamningurinn var undirritaður í húsakynnum Ríkissáttasemjara 1. apríl síðastliðinn. Eins og kunnugt er felldu félagsmenn Félags framhaldsskólakennara og Félags stjórnenda í ríkisreknum framhaldsskólum nýverið samkomulag frá 4. febrúar um nýtt vinnumat og þar með voru samningar þeirra lausir.
Atkvæðagreiðsla um hinn nýja kjarasamning fór fram dagana 13. og 14. apríl. Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar eru eftirfarandi:
- Á kjörskrá voru 1.549
- Atkvæði greiddu 1.140 eða 73,6%
- Já sögðu 662 eða 58,0%
- Nei sögðu 440 eða 38,5%
- Auðir seðlar voru 40 eða 3,5%
Hægt er að kynna sér kjarasamninginn hér og jafnframt liggur fyrir viðauki við skýrslu verkefnisstjórnar um vinnumat þar sem rammar hafa verið skýrðir.