Kjarasamningar FSL og SÍ samþykktir
Fréttir|5. september 2022

Félagsmenn í Félagi stjórnenda leikskóla og Skólastjórafélagi Íslands samþykktu nýgerða kjarasamninga.
Atkvæðagreiðslu um samningana tvo lauk klukkan 12 í dag.
Samninganefndir FSL og SÍ skrifuðu hvor um sig undir kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga 26. ágúst síðastliðinn.
Samningarnir voru síðan kynntir félagsmönnum og bornir undir atkvæði. Kosið var dagana 31. ágúst til 5. september.
Úrslit atkvæðagreiðslnanna voru svohljóðandi:
Félag stjórnenda leikskóla
- Á kjörskrá voru 421
- Atkvæði greiddu 268, eða 63,66%
- Já sögðu 137, eða 51,12%
- Nei sögðu 127, eða 47,39%
- Auðir voru 4, eða 1,49%
Skólastjórafélag Íslands
- Á kjörskrá voru 687
- Atkvæði greiddu 450, eða 65,50%
- Já sögðu 396, eða 88,00%
- Nei sögðu 45, eða 10,00%
- Auðir voru 9, eða 2,00%
Gildistími samninganna er frá 1. janúar 2022 og til 30. september 2023.
Hægt er að kynna sér samningana, sjá fyrri samninga og launareiknivél undir liðnum kjaramál og styrkir hér á vefnum.