Kjarasamningar FL, FSL og SÍ samþykktir

Fréttir|7. ágúst 2020

Félagsmenn í Félagi leikskólakennara, Félagi stjórnenda leikskóla og Skólastjórafélagi Íslands hafa samþykkt nýgerða kjarasamninga.

Atkvæðagreiðslu um samningana þrjá lauk klukkan 11 í dag.

Félögin þrjú, FL, FSL og SÍ skrifuðu undir kjarasamninga við Samband íslenskra sveitarfélaga 10. júlí síðastliðinn.

Samningarnir voru síðan kynntir félagsmönnum og bornir undir atkvæði en kosning hófst síðastliðinn þriðjudag og lauk, sem fyrr segir, í dag.

 

Úrslit atkvæðagreiðslnanna voru svohljóðandi:

Félag leikskólakennara

  • Á kjörskrá voru 1.764
  • Atkvæði greiddu 1.236 eða 70,07%
  • Já sögðu 1.008 eða 81,55%
  • Nei sögðu 204 eða 16,51%
  • Auðir 24 eða 1,94%

Félag stjórnenda leikskóla

  • Á kjörskrá voru 417
  • Atkvæði greiddu 319 eða 76,5%
  • Já sögðu 280 eða 87,77%
  • Nei sögðu 36 eða 11,2%
  • Auðir 3 eða 0,94%

Skólastjórafélag Íslands

  • Á kjörskrá voru 656
  • Atkvæði greiddu 507 eða 77,29%
  • Já sögðu 473 eða 93,29%
  • Nei sögðu 31 eða 6,12%
  • Auðir 3 eða 0,59%

Gildistími samninganna þriggja er sá sami, eða frá 1. janúar 2020 til 31. desember 2021.

Hægt er að kynna sér samningana og launareiknivél undir liðnum kjaramál og styrkir hér á vefnum.

Enn er ósamið við Félag grunnskólakennara og Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum. Viðræðuáætlun var endurnýjuð í liðnum mánuði og eru í viðræður í gangi.