Kjarasamninga strax

Fréttir|4. febrúar 2014

Í nýjum vikupósti Félags framhaldsskólakennara fjallar Elna Katrín Jónsdóttir, framhaldsskólakennari við Kvennaskólann í Reykjavík, um kjarasamningsviðræður framhaldsskólakennara sem núna standa yfir og bendir m.a. á skyndifundi kennara í framhaldsskólum um allt land sem haldnir voru í gær, mánudaginn 3. febrúar:

„Í gær, mánudaginn 3. febrúar söfnuðust kennarar í framhaldsskólum landsins saman til þess að ræða um slök launakjör í framhaldsskólum og vilja- og getuleysi viðsemjanda okkar til þess að standa við markmið um sambærileg kjör okkar og annarra sérfræðinga í þjónustu ríkisins. Í samþykktum sem sendar voru frá nær öllum framhaldsskólum mátti lesa sömu skilaboðin sem í hnotskurn eru: Okkur er nóg boðið.“

Þá segir hún einnig: „Fjármálaráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra þurfa nú að vinda að því bráðan bug að fela fulltrúum sínum að bera fram raunhæfar tillögur við samningaborðið um að leiðrétta launakjör kennara og annarra félagsmanna KÍ í framhaldsskólum og um aðferðir til að halda launaþróun í eðlilegu horfi til frambúðar. Þannig og aðeins þannig getur skapast umræðugrundvöllur um framhaldsskóla framtíðarinnar við kennarastéttina“, segir Elna. Hér er hægt að lesa erindi Elnu.