Kjaradeilu vísað til sáttasemjara
Fréttir|24. janúar 2014
Félög framhaldsskólakennara og stjórnenda í framhaldsskólum hafa ásamt samninganefnd ríkisins vísað kjaraviðræðum sínum til sáttasemjara. Þetta var gert í gær.
Stjórn og samninganefnd Félags framhaldsskólakennara fundaði í dag með formönnum félagsdeilda og trúnaðarmönnum í framhaldsskólum um stöðuna sem upp er komin í samningaviðræðum við ríkið.
Oddur S. Jakobsson, hagfræðingur KÍ, flutti erindi um laun í framhaldsskólum og Aðalheiður Steingrímsdóttir, formaður FF, fór yfir gang samningaviðræðnanna hingað til. Í orðum hennar kom fram að langt væri á milli aðila í deilunni.
Kjarasamningur FF og FS við ríkið rennur út 31. janúar næstkomandi.