Kjaradeilu KÍ við ríki og sveitarfélög vísað til ríkissáttasemjara

Fréttir|26. september 2024

Formaður KÍ og formenn aðildarfélaga KÍ sendu í dag sameiginlegt bréf til félagsfólks þar sem greint er frá stöðu kjaramála.

Bréf formannanna hljóðar svo: 

 

Kæra félagsfólk!

Síðdegis mánudaginn 23. september, barst tilkynning frá samninganefnd sveitarfélaga um að öllum kjaradeilum við aðildarfélög KÍ væri vísað til ríkissáttasemjara. Fram kom að samninganefnd sveitarfélaga teldi útilokað að árangur yrði af frekari viðræðum milli aðila án aðkomu embættis ríkissáttasemjara.

Í gær, miðvikudaginn 25. september, ákváðu Félag framhaldsskólakennara og Félag stjórnenda í framhaldsskólum að vísa kjaradeilu sinni við ríkið til ríkissáttasemjara. Það þýðir að nú munu viðræður milli alls Kennarasambandsins annars vegar og allra opinberra launagreiðenda hins vegar fara fram undir verkstjórn ríkissáttasemjara.

Eins og áður hefur komið fram hafa öll aðildarfélög KÍ myndað eina sameiginlega viðræðunefnd um jöfnun launa milli markaða enda er það verkefni sameiginlegt forgangsmál allra samninganefnda KÍ. Formaður Kennarasambandsins tilkynnti ríkissáttasemjara síðla dags í gær að þessi viðræðunefnd komi fram fyrir hönd allra aðildarfélaga KÍ í komandi viðræðum um jöfnun launa.

Þessi staða markar þáttaskil í deilunni og kallar á samstöðu og styrk alls Kennarasambandsins. Við höfum sýnt það að við ætlum að nýta þann kraft sem býr í heildinni. Við verðum tilbúin að ná árangri með þeim ráðum sem þarf, enda algerlega ljóst að kominn er tími á að efna loforð um jöfnun launa. Nú er svo sannarlega kominn tími til að fjárfesta í kennurum, ráðgjöfum og stjórnendum.

Þegar þetta er skrifað hefur ekki verið boðað til fundar í deilunni og enn óljóst um næstu skref.

Með kveðju,
viðræðunefnd KÍ

Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ
Anton Már Gylfason, formaður FS
Guðjón Hreinn Hauksson, formaður FF
Haraldur F. Gíslason, formaður FL
Mjöll Matthíasdóttir, formaður FG
Sigrún Grendal, formaður FT
Sigurður Sigurjónsson, formaður FSL
Þorsteinn Sæberg, formaður SÍ