KÍ uppfræðir forystuhópinn

Fréttir|5. september 2014

 

Aðalheiður Steingrímsdóttir, varaformaður KÍ, skrifar. 

Í þeirri stefnu sem þing KÍ lagði sl. vor um fræðslumálin er m.a. lögð áhersla á að fræðslunefnd KÍ hafi annars vegar með höndum forystufræðslu fyrir kjörna fulltrúa í stjórnum, nefndum og ráðum KÍ og aðildarfélaga til að styrkja fólk í störfum sínum og hins vegar sameiginlega fræðslu fyrir trúnaðarmenn um hlutverk þeirra, helstu hagsmunamál stéttarinnar og það sem er ofarlega á baugi hverju sinni.

Fræðslunefndin vinnur nú að undirbúningi þessa, en hana skipa Aðalheiður Steingrímsdóttir og Hafdís D. Guðmundsdóttir frá KÍ, Elín Anna Ísaksdóttir FT, Fjóla Þorvaldsdóttir FL, Guðbjörg Ragnarsdóttir FG, Hanna Björg Vilhjálmsdóttir FF og Ingibjörg Kristleifsdóttir sem er fulltrúi allra stjórnendafélaganna (FS, FSL, SÍ).
Markmiðið með forystufræðslunni er að efla þekkingu á uppbyggingu og starfsemi kennarasamtakanna og fyrir hvað þau standa, sem og þátttöku í framkvæmd stefnumála og virkni í félagsstarfi. Mikilvægt er að fólk sem er kjörið er til trúnaðarstarfa fyrir kennarasamtökin þekki vel ábyrgð sína og skyldur, nú þegar nýtt starfstímabil fer í hönd. Forystufræðslan verður á dagskrá snemma í haust og verða nánari upplýsingar um hana birtar bráðlega.
Námskeið fyrir trúnaðarmenn
Fræðslunefndinni er ætlað að hafa með höndum árlega fræðslu fyrir trúnaðarmenn og hefur hún ákveðið að byrja á því að einbeita sér að nýjum og nýlegum trúnaðarmönnum. Þó að fræðsla þeirra um sameiginleg hagsmuna- og réttindamál sé nú orðin miðlæg þá munu aðildarfélögin áfram sjá um fræðslu fyrir trúnaðarmenn sem tengist beint kjarasamningum þeirra og innra starfi. Fræðslunefndin hefur skoðað hvað trúnaðarmenn sögðu um fræðsluþörf sína í könnun sem var lögð fyrir þá vorið 2013 og verða þær niðurstöður notaðar til að skipuleggja fræðsluna. Þar eru ráðningarmál mjög ofarlega á blaði sem og lífeyrismál, veikinda- og orlofsréttur og vinnuumhverfismál. Gert er ráð fyrir að þessi sameiginlega trúnaðarmannafræðsla verði á dagskrá þegar kemur fram í október og verða nánari upplýsingar sendar út þegar þar að kemur. Reyndari trúnaðarmönnum verður boðið að vera með í fræðslunni ef þeir telja sig hafa þörf fyrir hana.

F.h. Kennarasambands Íslands
Aðalheiður Steingrímsdóttir

Grein Aðalheiðar birtist í Skólavörðunni, 2. tbl. 2014, sem hægt er að nálgast hér.