KÍ tekur við forystu Norrænu kennarasamtakanna
Formaður KÍ, Þórður Árni Hjaltested, tekur við formennsku í Norrænu Kennarasamtökunum (NLS) um áramótin og mun Kennarasambandið leiða starf samtakanna árið 2016. NLS er samráðsvettvangur og samstarfsvettvangur norrænu kennarafélaganna og verða formlegir stjórnarfundir samtakanna verða af þessum sökum haldnir hér á íslandi á næsta ári. Í starfinu framundan verður unnið eftir þemanu „Skóli framtíðar" en einnig verður lögð sérstök áhersla á störf kennarans.
„Ungir kennarar og nýliðun í kennslu er þarft viðfangsefni en mjög mikilvægt er að gera kennarastarfið eftirsóknarvert. Í því sambandi þurfum að að skoða áherslur og aðferðir í starfi kennarasamtakanna, og skoða sérstaklega ungliðastefnu kennarafélaga, starf þeirra í þágu ungra/nýrra kennara og hvaða aðferðum verið er að beita við að virkja þá í félagsstarfinu,“ segir Þórður Árni um verkefnin framundan. Hann bætir við að auðvitað þurfi ennfremur að huga að kennurum og kennarastarfinu almennt.
„Hluti af því að gera kennarastarfið eftirsóknarvert liggur í að skapa góðar aðstæður kennara til að sinna símenntun og starfsþróun allan starfsferilinn (kennaramenntun sem ævimenntun). Í því sambandi munum við hér heima horfa sérstaklega á starf Fagráðs um símenntun kennara og skólastjórnenda.“