KÍ styrkir Rauða krossinn
Kennarasamband Íslands styrkir Rauða krossinn um 350 þúsund krónur. Ákvörðun um styrkveitinguna var tekin á stjórnarfundi KÍ 11. desember síðastliðinn.
Þórður Á. Hjaltested, formaður KÍ, heimsótti af þessu tilefni höfuðstöðvar Rauða krossins í morgun og afhenti Þóri Guðmundssyni, deildarstjóra Reykjavíkurdeildar, styrkinn. „Það er mér mikil ánægja að afhenda ykkur þennan styrk sem verður nýttur í starf með börnum flóttafólks. Ég vona að styrkurinn komi að góðum notum, sagði Þórður.
Þórir Guðmundsson sagði styrkféð myndu koma sér vel og það verði látið renna í nýjan tómstundasjóð fyrir börn flóttafólks. „Ég held að þessi sjóður geti orðið til þess að aðlögunin gangi miklu betur og að börnunum muni líða betur á Íslandi," sagði Þórir. Hann sagði börn flóttafólks upplifa mikla breytingu á sínum högum og því skipti miklu máli að börnin geti fengið aðstoð við að stunda íþróttir af ýmsu tagi og sækja til dæmis tónlistarnám.
Kennarasambandið hefur ekki sent út jólakort um langt árabil en þess í stað látið fé af hendi rakna til góðgerðarfélaga og samtaka sem vinna að velferð barna og ungmenna. Fjöldi samtaka hefur notið góðs af jólakortastyrk KÍ og má þar nefna Umhyggju, Barnaspítala Hringsins, Þroskahjálp, Unglingadeild SÁÁ, Mæðrastyrksnefnd, Krabbameinsfélagið, Hjálparstarf kirkjunnar og Barnaheill – Save the Children.