KÍ styrkir kennara og uppbyggingu skólastarfs í Nepal
Kennarasamband Íslands hefur ákveðið að senda sjö þúsund evra styrk (um eina milljón króna) til handa kennurum og fjölskyldum þeirra í Nepal. Styrkurinn nemur um 100 krónum á hvern félagsmann í KÍ. Þórður Hjaltested, formaður KÍ, segir hjálparbeiðni hafa borist frá Alþjóðasamtökum kennara (Education International) þar sem óskað var eftir framlögum aðildarfélaga til að bregðast við því skelfilega ástandi sem ríkir í Nepal.
Að minnsta kosti sjö þúsund manns týndu lífi í jarðskjálfta sem reið yfir Nepal 25. apríl síðastliðinn. Jarðskjálftinn mældist 7,8 stig á Richter og honum fylgdi gríðarleg eyðilegging. Óttast er að enn fleiri hafi farist í hamförunum.
Þórður segir Kennarasambandið vilja leggja sitt af mörkum til uppbyggingar í Nepal en styrktarfé Alþjóðasamtaka kennara verður einkum notað til að koma skólastarfi aftur í gang og styðja við kennara og fjölskyldur þeirra.
Kennarasamband Íslands varð við sambærilegri hjálparbeiðni frá Haíti þegar jarðskjálfti skók landið árið 2010 með þeim afleiðingum að yfir 100 þúsund manns biðu bana.