KÍ styður söfnun alþjóðlegra kennarasamtaka vegna ástandsins í Úkraínu

Greiddar voru hundrað íslenskar krónur á hvern félagsmann sem gera samtals 1.110.900 krónur.
Þann 24. febrúar síðastliðinn gerði rússneski herinn árás á Úkraínu. Samdægurs sendi formaður KÍ, Ragnar Þór Pétursson, stuðningskveðju til samtaka kennara þar í landi. Í kveðjunni var því lofað að KÍ myndi standa við bakið á kennurum og öðrum íbúum Úkraínu og að sambandið fordæmdi það ofbeldi og yfirgang sem landið mætti nú þola af nágrannaþjóð sinni.
Í bréfinu kom einnig fram að KÍ myndi beita íslensk stjórnvöld þrýstingi um að standa við bakið á fórnarlömbum stríðsins. Á grundvelli þess lagði formaður KÍ það til við forsætis-, fjármála-, innviða- og vinnumarkaðsráðherra, á fundi Þjóðhagsráðs fimmtudaginn 10. mars, að stjórnvöld hefðu frumkvæði að því að leiða saman krafta helstu hagsmunaafla í samfélaginu, þar á meðal stéttarfélaga, til stuðnings því flóttafólki sem til Íslands kemur, hvort sem það er frá Úkraínu eða öðrum stríðshrjáðum svæðum.
„Miklu skiptir að Íslendingar geri ekki aðeins skyldu sína sem þátttakendur í alþjóðasamfélaginu, þeir þurfa að vanda sig,“ sagði Ragnar Þór og bætti við: „Skylda okkar er ekki aðeins sú að skapa flóttafólki öruggt skjól, heldur búa þannig að því að það búi við þá reisn og þann stuðning sem allt fólk verðskuldar. Nú er ekki nóg að treysta á hin samfélagslegu kerfi, það þarf að treysta þau og samstilla. Kennarasamband Íslands mun ekki láta sitt eftir liggja. Þessa vinnu þurfa þó stjórnvöld að leiða.“
Á vegum Alþjóðasamtaka kennara (EI) hefur verið stofnaður neyðarsjóður til að skipuleggja þá hjálp sem frá alþjóðlegu kennarasamtökunum berst. Kennarasambandið hefur, eins og samtök kennara um heim allan, þegar lagt í sjóðinn. Greiddar voru hundrað íslenskar krónur á hvern félagsmann sem gera samtals 1.110.900 krónur.