KÍ stefnir ríki og sveit vegna launatöfluauka

Þingfest hefur verið í Félagsdómi mál Kennarasambands Íslands gegn ríkinu og Sambandi íslenskra sveitarfélaga er varðar launatöfluauka til handa félagsfólki KÍ.
Mál Kennarasambands Íslands gegn ríkinu og Sambandi íslenskra sveitarfélaga vegna launatöfluauka fyrir félagsfólk KÍ var þingfest í Félagsdómi á þriðjudag. Aðilum málsins var veittur frestur til að skila greinargerð fyrir 15. desember.
Málið snýr að því að í kjarasamningum opinberra starfsmanna, bæði við ríkið og sveitarfélög, var samið um að greiddur yrði svonefndur launatöfluauki sem ætlað er að stuðla að því að þróun launakostnaðar á opinberum markaði haldi að jafnaði í við þróun launakostnaðar sambærilegra hópa á almennum markaði.
Nú þegar komið er að fyrsta uppgjöri launatöfluaukans telja ríki og sveitarfélög að félagsfólk KÍ eigi ekki að fá slíkan launaauka með þeirri skýringu að ekki hafi verið í gildi kjarasamningur við KÍ í desember 2024. Stjórn KÍ ritaði ásamt fulltrúum launagreiðenda undir innanhússtillögu ríkissáttasemjara þann 29. nóvember 2024 og byggir stefna KÍ á því að samþykkt slíkrar tillögu feli í sér að sama staða sé komin upp eins og ef kjarasamningur hefði verið undirritaður. Félagsfólk KÍ eigi því rétt til launatöfluauka.
Reikna má með að málið verði flutt í Félagsdómi í byrjun árs 2026 og dómur falli í febrúar.