KÍ spyr Sjálfstæðisflokkinn um fyrirætlanir í menntamálum
„Þvert gegn faglegum sjónarmiðum kennarastéttarinnar á Íslandi var nám í framhaldsskólum stytt um eitt ár úr fjórum árum í þrjú á kjörtímabilinu sem er að líða. Sú aðgerð var harðlega gagnrýnd af forystu kennara í skólamálum og talin rýra innihald náms á framhaldsskólastigi." Þetta er meðal þess sem kemur fram í fréttatilkynningu sem KÍ sendi frá sér fyrr í dag.
Þar segir jafnframt:
„Nú hefur ritari Sjálfstæðisflokksins lýst því yfir að skólann megi stytta enn meira og hlýtur það að endurspegla stefnu Sjálfstæðisflokksins í menntamálum.
Kennarasamband Íslands óskar eftir því að Sjálfstæðisflokkurinn upplýsi nánar um fyrirætlanir sínar og upplýsi kjósendur um eftirfarandi:
• Hvaða skólastig hyggst flokkurinn stytta?
• Um hversu mörg ár?
• Hvaða kennslugreinar aðallega telur flokkurinn að megi missa sín í íslensku skólakerfi?“