KÍ sendir umsögn um fjárlagafrumvarpið

Fréttir|20. desember 2017

Kennarasamband Íslands hefur sent fjárlaganefnd Alþingis umsögn vegna frumvarps til fjárlaga fyrir 2018.

KÍ leggur fast að fjárlaganefnd að sett verði fjármagn í að útbúa grunn að upplýsingum, fræðslu, ráðgjöf og stuðningi við kennara og skóla sem sinna menntun barna í leit að alþjóðlegri vernd. „Slíkur grunnur myndi nýtast öllum þeim sem koma að menntun barnanna og með honum væri ennfremur hægt að tryggja mikilvægt samræmi í stuðningi og þjónustu við þau og fjölskyldur þeirra óháð búsetu," segir í umsögninni. 

Þá lýsir KÍ yfir miklum vonbrigðum með áætluð fjárframlög til framhaldsskólanna í fjárlagafrumvarpinu. Væntingar um mikla innviðauppbyggingu komi ekki fram í frumvarpinu hvað varði framhaldsskólana. Lagt er fast að fjárlaganefnd og Alþingi að auka framlög til framhaldsskólanna. 

Vikið er gerð og útgáfu námsagna fyrir grunnskóla. „Það er ljóst að staðan á útgáfu námsefnis fyrir nemendur á skólaskyldualdri helst engan veginn í hendur við áherslur námskrár eða hraðstígar tæknibreytingar. Algjört ófremdarástand er í útgáfu námsefnis fyrir framhaldsskóla og ósvífnar álögur eru lagðar á nemendur og foreldra vegna kostnaðar við kaup á námsefni. Alþingi og fjárlaganefnd verða að taka þessu stöðu alvarlega," segir orðrétt í umsögn KÍ. 

KÍ leggur jafnframt fast að fjárlaganefnd að hækka fjárframlög til Sprotasjóðs og Þróunarsjóðs námsgagna í samræmi við áherslur ríkisstjórnarinnar um að efla nýsköpun og þróun á öllum skólastigum. 

Margt fleira er til umfjöllunar í umsögn KÍ og hægt að kynna sér efni hennar hér: 

Umsögn Kennarasambands Íslands um frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2018. 

Fylgiskjöl með umsögn Kennarasambands Íslands um frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2018.