KÍ sendir færeyskum leikskólakennurum baráttukveðjur

Fréttir|16. júní 2021

Leikskólakennarar í Færeyum heyja harða kjarabaráttu þessa dagana. Stjórnvöld hyggjast setja lög á aðgerðir þeirra.

„Kennarasamband Íslands sendir færeyskum kennurum í kjarabaráttu stuðnings- og baráttukveðjur. Að bregðast við kennaraskorti á ábyrgan hátt er skylda stjórnvalda um heim allan. Sú skylda verður ekki uppfyllt nema kjör kennara séu sambærileg kjörum annarra sérfræðinga.“

Á þessum orðum hefst stuðningsyfirlýsing Kennarasambands Íslands til handa félögum í Føroya Pedagogfelag sem nú heyja harða kjarabaráttu. Leikskólakennarar hafa dregist mjög aftur úr öðrum sambærilegum stéttum og hvorki hefur gengið né rekið að sækja þær kjarabætur sem félagið sættir sig við. Aukinheldur er leikskólakennaraskortur alvarlegur í Færeyjum en um 700 kennara vantar til starfa.

Nú liggur fyrir að færeyska þingið skoðar nú möguleikann á að beita lögum til að skylda hluta kennara aftur til starfa. „Kennarasamband Íslands fordæmir slík vinnubrögð og minnir á að réttur launafólks til að berjast fyrir bættum kjörum er grundvallaratriði í frjálsu samfélagi," segir í yfirlýsingu KÍ. 

Føroya Pedagogfélag nýtur mikils stuðnings annarra stéttarfélaga í Færeyjum sem öll andæfa hugmyndum um að lög verði sett á aðgerðir félagsins. 

Yfirlýsing KÍ var send Jógvan Philbrow, formanni Føroya Pedagogfelag, síðdegis í dag.

Félagar í Føroya Pedagogfelag eru um tvö þúsund; leikskólakennarar, leiðbeinendur og starfsfólk. Hægt er að fylgjast með gangi mála á Facebook-síðu félagsins. 

 

Stuðnings- og baráttukveðjur frá KÍ

Kennarasamband Íslands sendir færeyskum kennurum í kjarabaráttu stuðnings- og baráttukveðjur. Að bregðast við kennaraskorti á ábyrgan hátt er skylda stjórnvalda um heim allan.

Sú skylda verður ekki uppfyllt nema kjör kennara séu sambærileg kjörum annarra sérfræðinga. Viðbrögð færeyskra stjórnvalda við kröfum og aðgerðum Føroya Pedagogfelag eru til þess fallin að auka vandann í stað þess að minnka hann.

Kennarasamband Íslands fordæmir slík vinnubrögð og minnir á að réttur launafólks til að berjast fyrir bættum kjörum er grundvallaratriði í frjálsu samfélagi.