KÍ semur við Fjölmennt og Verzlunarskóla Íslands

Samningarnir eru sambærilegir og hjá öðrum félagsmönnum KÍ í framhaldsskólum.
Kennarasamband Íslands, fyrir hönd félagsmanna í Félagi framhaldsskólakennara og Félagi stjórnenda í framhaldsskólum, undirritaði framlengingu á kjarasamningi við Fjölmennt um kaffileytið á föstudag.
Einnig undirritaði Kennarasamband Íslands, fyrir hönd félagsmanna í Félagi framhaldsskólakennara og Félagi stjórnenda í framhaldsskólum, framlengingu á kjarasamningi við Verzlunarskóla Íslands.
Samningarnir eru sambærilegir og hjá öðrum félagsmönnum KÍ í framhaldsskólum.
Atkvæðagreiðslur um hið nýja samkomulag fara fram í vikunni og verða kynntar nánar.

Undirritun KÍ og Verzlunarskólans. Frá vinstri: Guðjón Hreinn Hauksson, formaður FF, Ingi Ólafsson, skólastjóri VÍ, Ásta Henriksen trúnaðarmaður og Óli Njáll Ingólfsson, formaður kennarafélags skólans.