KÍ reiðubúið að aflýsa verkföllum í fjórum leikskólum

Verkföll hafa staðið yfir í Leikskóla Seltjarnarness, Drafnarsteini í Reykjavík, Holti í Reykjanesbæ og Ársölum á Sauðárkróki síðan 29. október. KÍ hefur lagt fram tillögu sem hefði í för með sér að hægt væri að opna leikskólana fjóra á nýjan leik.
Kennarasambandið hefur sent borgarstjóra og bæjarstjórum á Seltjarnarnesi, Sauðárkróki og í Reykjanesbæ erindi þar sem segir að KÍ sé reiðbúið að aflýsa verkföllum í Leikskóla Seltjarnarness, Drafnarsteini í Reykjavík, Holti í Reykjanesbæ og Ársölum á Sauðárkróki.
Framkvæmdin yrði með þeim hætti að KÍ mynda aflýsa verkföllum í fyrrgreindum fjórum leikskólum frá og með 27. nóvember næstkomandi og sveitarfélagið myndi á sama tíma skuldbinda sig til að greiða laun þeirra starfsmanna sem voru í verkfalli. Gert yrði samkomulag um þessa framkvæmd sem yrði undirrituð af öllum aðilum málsins.
Fordæmi eru fyrir slíku og nægir að nefna eins dags allsherjarverkfall grunnskólakennara árið 2014.
Ef tillaga KÍ verður samþykkt þá gætu leikskólarnir fjórir opnað fyrir öll börn á miðvikudag í næstu viku.
Borgarstjóri og bæjarstjórar eru beðnir að svara erindinu eigi síðar en klukkan tólf á mánudag.