KÍ nýtir orlofseignir til að aðstoða Grindvíkinga
Fréttir|16. nóvember 2023

Í samstarfi við flest stærstu stéttarfélög landsins, ríkið og Rauða kross Íslands (RKÍ) býður Orlofssjóður KÍ eignir sínar Grindvíkingum til afnota í gegnum úthlutun RKÍ.
Kennarasamband Íslands býður Grindvíkingum orlofseignir til afnota vegna aðstæðna. RKÍ sér um að útdeila húsnæðinu í samræmi við þarfir og óskir notenda.
Ellefu eignir Orlofssjóðs KÍ eru þegar komnar á lista RKÍ. Ef þörf er á verður fleiri eignum bætt við.
Hér er hægt að sækja um íbúð.
Ef breyta þarf skráningu eða uppfæra umsókn er hægt að gera það með því að senda póst á netfangið upplysingar@redcross.is.
Ef einstaklingur eða samtök hefur færi á að bjóða húsnæði til leigu er hægt að gera það hér.