KÍ mótmælir hækkun virðisaukaskatts

Fréttir|19. september 2014

Kennarasamband Íslands mótmælir harðlega áformum stjórnvalda til að hækka lægra þrep virðisaukaskatts úr sjö prósentum í tólf prósent. KÍ telur að það muni óhjákvæmilega leiða til þess að verð að nauðsynjavörum muni hækka. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ályktun sem Stjórn Kennarasambands Íslands hefur sent frá sér.

Í ályktuninni segir jafnframt að hækkun virðisaukaskattþrepsins muni hafa í för með sér hærra bókaverð og samdrátt í framboði íslenskra bóka. 

Þá mótmælir stjórn KÍ þeim áformum stjórnvalda um að greiða ekki í sjóð VIRK endurhæfingar á næsta ári. Þar með sé endurhæfing fjölda skjólstæðinga sjóðsins sett í uppnám. 

Ályktunin er svohljóðandi: 


Reykjavík, 19. september 2014

„Stjórn Kennarasambands Íslands mótmælir harðlega áformum stjórnvalda að hækka lægra þrep virðisaukaskatts úr 7% í 12%. Það mun óhjákvæmilega leiða til að verð á mat og öðrum nauðsynjavörum hækkar umtalsvert, sem bitnar helst á þeim sem minnst mega sín í íslensku samfélagi. Hækkun á virðisaukaskatti á bækur fer illa saman við yfirlýsta stefnu stjórnvalda um að bæta lestrarkunnáttu ungs fólks. Breytingin mun leiða til verðhækkunar á bókum sem mun án efa leiða til þess að framboð af íslenskum bókum dregst saman. Breytingarnar munu einnig auka útgjöld framhaldsskólanema til bókakaupa, sem voru allt of há fyrir.

Stjórn KÍ mótmælir ennfremur þeim áformum stjórnvalda að greiða ekkert í sjóði VIRK endurhæfingar á ári komanda eins og þó er kveðið á um í lögum frá árinu 2012. Þar með er framtíðarstarf VIRK í hættu og um leið er endurhæfing fjölda skjólstæðinga sjóðsins sett í uppnám. Stjórnvöld eru hvött til að standa við gerða samninga.“