KÍ mótmælir áformum um afnám áminningarskyldu

Kí hvetur stjórnvöld eindregið til að endurskoða áform um afnám áminningarskyldu og fordæmir samráðsleysi í málinu. Áminningarskylda er ekki hindrun, að mati KÍ, heldur tækifæri til umbóta.
Kennarasamband Íslands (KÍ) mótmælir áformum ríkisstjórnarinnar um að fella niður áminningarskyldu úr lögum nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins (starfsmannalögum) og lýsir yfir þungum áhyggjum vegna þessara áforma. Ríkisstjórnin hefur hvorki verið í samráði við KÍ né önnur heildarsamtök launafólks vegna þeirra. KÍ fordæmir slík vinnubrögð og samráðsleysi og ætla má að ólöglegt sé að skerða réttindi með þessum hætti."
Á þessum orðum hefst umsögn Kennarasambands Íslands um áform um frumvarp til laga um breytingar á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Umsögnin var send í samráðsgátt stjórnvalda á sunnudag.
Í umsögninni segir jafnframt að mikilvægt sé að verja ríkisstarfsmenn gegn þeirri yfirburðastöðu sem vinnuveitandi þeirra, íslenska ríkið, er. „Tryggja þarf að geðþóttaákvarðanir valdhafa hverju sinni ákvarði ekki hvort starfsmenn haldi starfi sínu," segir í umsögn KÍ.
Áminning er, að mati KÍ, mikilvægur öryggisventill fyrir opinbera starfsmenn. „Kennarar gegna lykilhlutverki við að miðla þekkingu, efla gagnrýna hugsun og stuðla að upplýstri umræðu. Ef þeir óttast uppsögn án áminningar fyrir að fjalla um viðkvæm eða umdeild mál getur það leitt til þess að þeir fjalli ekki um slík mál sem dregur eðli málsins samkvæmt úr gæðum menntunar og vegur að gagnrýnni hugsun, tjáningarfrelsi og lýðræði," segir orðrétt í umsögninni.
Hvorki flókið né erfitt í framkvæmd
Fjallað er ítarlega um áminningarskylduna í umsögn KÍ. Þar segir meðal annars að áminningarskyldan sé í takt við meðalhófsreglu og það sé misskilningur að áminningarferli sé flókið og erfitt í framkvæmd. „Áminning á ekki að fela í sér refsingu heldur vera tól til að stuðla að faglegri þróun og umbótum bæði hjá starfsmanni og vinnuveitanda. Áminningarferli gefur starfsmanni tækifæri til að bæta sig og vinnuveitanda tækifæri til að styðja við umbætur. Slík nálgun eykur traust og tryggð, dregur úr óttastjórnun og stuðlar að heilbrigðri vinnustaðamenningu," segir i´umsögninni.
Það er auk þess mat KÍ að áður en farið er að íhuga svo íþyngjandi aðgerð, sem afnám áminningarskyldu er, væri rétt að finna rót vandans og rannsaka hvernig mannauðsstjórnum er háttað hjá hinu opinbera. Svo sem hvernig starfsmannasamtölum, endurgjöf og stuðningi í starfi er háttað. Þá væri áhugavert að kanna hvers konar fræðslu, þjálfun og stuðning stjórnendur fá til að takast á við áskoranir í mannauðsmálum.
Í umsögninni er auk þess fjallað um hin Norðurlöndin en þar er í flestum tilvikum kveðið á um áminningarskyldu og meðalhóf er varðar opinbera starfsmenn áður en til uppsagnar kemur. Í sumum tilfellum ná þessar reglur til almenna markaðarins.
Samráðsleysi harmað
KÍ áréttar í umsögninni mikilvægi samráðs fulltrúa launagreiðenda og samtaka launafólks þegar kemur að ákvörðunum er varða starfskjör. Þá harmar KÍ að einhliða tilkynning sem launagreiðendur tilkynntu á fundi með forsvarsmönnum samtaka launafólks hafi verið kynnt sem samráð. „Það er auðvitað ekki samráð heldur einhvers konar gervisamráð sem sæmir ekki fulltrúum ríkisins að leggja inn í umræðuna sem felur í sér algerlega óþolandi og ólíðandi vinnubrögð og vond samskipti sem eru til þess eins fallin að rýra traust milli aðila," segir í umsögninni.
Kí hvetur stjórnvöld eindregið til að endurskoða áform um afnám áminningarskyldu og fordæmir samráðsleysi. „Veruleg hætta er á að afnám áminningarskyldu leiði til þess að kennarar óttist og forðist að fjalla um viðkvæm og/eða umdeild málefni af ótta við uppsögn án áminningar. Slíkt myndi grafa undan tjáningarfrelsi, gagnrýnni hugsun og gæðum menntunar á Íslandi."
Áminningarskylda er ekki hindrun, að mati KÍ, heldur tækifæri til umbóta. Kennarasambandið lýsir sig reiðubúið til samstarfs um þróun og innleiðingu lausna sem stuðla að faglegri og sanngjarnri meðferð starfsmannamála.
„Í stað þess að fella niður áminningarskyldu ætti að beina sjónum að því að styrkja stjórnendur í hlutverki sínu, veita þeim fræðslu og stuðning og efla umbótamenningu," segir í umsögn KÍ.