KÍ leggst gegn áfengisfrumvarpinu

Fréttir|21. mars 2017

Kennarasamband Íslands leggur fast að Alþingi að samþykkja ekki frumvarp til laga um breytingu á lögum um verslun með áfengi og tóbak.

Kennarasamband Íslands er andvígt frumvarpi um að smásala á áfengi verði sett í hendur einkaaðila og að heimildir til auglýsinga á áfengi verði rýmkakaðar. KÍ leggur fast að Alþingi að samþykkja ekki frumvarpið.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í umsögn sem KÍ hefur sent allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis vegna frumvarps til laga um breytingu á lögum um verslun með áfengi og tóbak o. fl. 106. mál.

Í umsögn KÍ segir jafnframt: „Íslenskt samfélag hefur náð góðum árangri með forvörnum gegn áfengisneyslu ungmenna undanfarin ár og okkar forvarnarmódel er fyrirmynd margra annarra þjóða í þessum efnum. Þessi árangur hefur náðst með samstilltu átaki og samstöðu þeirra sem koma að velferðar- og hagsmunamálum bama og ungmenna, foreldra, kennara, skóla, félagasamtaka og fleiri aðila sem byggir á þeirri nálgun að litið er á áfengisneyslu ungmenna sem félagslegt og aðstöðubundið mál sem megi breyta með samræmdum aðgerðum margra í nærsamfélaginu og forvörnum er beint að heildinni til að ná til þeirra sem sýna áhættuhegðun.“

Þá segir í umsögninni að frumvarpið feli í sér afgerandi bakslag í lýðheilsumálum og grundvallarbreytingar á forsendum forvarnarstarfs í landinu. „Frumvarpið mun gera foreldrum erfitt að vinna gegn áhættuhegðun og neyslu barna sinna og torvelda starf kennara, skóla og annarra aðila að því að búa börnum og ungmennum þroskavænlegt og heilsusamlegt umhverfi.

Frumvarpið var lagt fram í byrjun febrúar á þessu ári. Fyrstu umræðu er lokið og er frumvarpið nú til meðferðar hjá allsherjar- og menntamálanefnd. Alls hafa nefndinni borist 74 umsagnir, þar af frá sjö framhaldsskólum.