KÍ heldur aukaþing

Fréttir|26. nóvember 2020

Um tvö hundruð og fimmtíu félagsmenn Kennarasambands Íslands sitja nú tveggja daga rafrænt aukaþing. Hér má finna slóð á útsendingu frá þinginu.

Kennarasamband Íslands efnir til aukaþings dagana 26. og 27. nóvember 2020. Efnt er til aukaþingsins í samræmi við samþykkt sem var gerð á 7. Þingi KÍ sem fram fór í apríl 2018. Þar segir að skipa skuli milliþinganefnd sem hafi það hlutverk að fara yfir og endurskoða skipulag, starfsemi og rekstur KÍ. Milliþinganefnd var skipuð að loknu þinginu 2018 og skilaði hún skýrslu nú á haustdögum. 

Aukaþing KÍ fer fram í netheimum og er áætlað að þingfundur standi yfir báða dagana frá kl. 13 til 17. Almennir félagsmenn geta fylgst með þinginu í streymi. 

Streymi frá þinginu opið öllum - smellið hér.

Þinggögn

 

Kynning á skýrslu milliþinganefndar, frá 19.11.2020