KÍ gerir athugasemdir við veggspjald Jafnréttisstofu

Fréttir|7. mars 2014

Kennarasamband Íslands gerir athugasemdir við veggspjald á vegum Jafnréttisstofu sem dreift er í skólum um þessar mundir. Í texta á veggspjaldinu segir meðal annars: ...að of fáar konur eru sýnilegar í valda- og virðingarstöðum og fáir karlar í uppeldis- og umönnunarstörfum.“

Þessum boðskap hafnar KÍ og í bréfi Bjargar Bjarnadóttur, varaformanns KÍ, til Jafnréttisstofu segir meðal annars : „Það að setja uppeldis- og umönnunarstörf sem andstæðu við valda- og virðingarstöður er algjörlega fáránlegt hvort sem er í þessu samhengi eða nokkru öðru. Það er nákvæmlega þetta viðhorf sem viðheldur þessum staðalmyndum og úreltu viðhorfum og er vægast sagt móðgandi við alla, bæði þá sem gegna þessum störfum og ekki síður ungdóminn sem á ekki að þurfa að alast upp við þetta viðhorf.“