KÍ gerir athugasemdir við LÍN-frumvarp menntamálaráðherra

Fréttir|10. ágúst 2016

Kennarasamband Íslands telur margt orka tvímælis í nýju frumvarpi til laga um námslán og námsstyrki, svokallað LÍN-frumvarp, sem lagt var fram í júní síðastliðnum. Það er mat KÍ að áform um að stytta námsaðstoð úr átta árum í sjö orki tvímælis og einnig að „námsaðstoð verði skert frá og með 50 ára aldri og felld niður til einstaklinga sem eru orðnir 60 ára,“ eins og segir í umsögninni. 

Þá er gagnrýnt að gerð sé krafa um að námsmenn greiði lán upp fyrir 67 ára aldur, að hætt verði að tekjutengja endurgreiðslur og að vextir verði hækkaðir á námslánum og þau beri vexti frá lántökudegi. „Að þessu leyti virðist sem meiri áhersla sé lögð á að tryggja hagsmuni LÍN gagnvart námsmönnum heldur en að skapa tækifæri til náms án tillits til efnahags," segir í umsögn KÍ. 

KÍ telur ýmislegt í frumvarpinu vera til bóta miðað við núgildandi lög. Þar eru nefndir sérstaklega beinir námsstyrkir sem munu án efa koma námsmönnum til góða og eru í samræmi við fyrirkomulag á hinum Norðurlöndunum. Þá þykir KÍ tvímælalaust í þágu hagsmuna námsmanna að hækka framfærsluviðmið í 100 prósent. 

Hins vegar saknar KÍ þess að í frumvarpinu sé ekki að finna greiningu á stöðu einstakra hópa námsmanna sem fá námsaðstoð frá sjóðnum og að hvaða leyti þær breytingar sem stefnt er að með frumvarpinu muni tryggja framfærsluþörf námsmanna betur en áður miðað við hlutverk og markmið sjóðsins. 

LÍN-frumvarpið verður væntanlega tekið til 1. umræðu á komandi þingi sem sett verður mánudaginn 15. ágúst 2016.

Umsögn KÍ í heild sinni.