KÍ gerir athugasemdir við fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar

Fréttir|18. maí 2018

Í umsögninni segir jafnframt að útgjöld til fræðslumála vegna leikskóla og grunnskóla, á árunum 2008 til 2017, hafi dregist saman sem hlutfall af vergri landsframleiðslu, að raunvirði og á hvern mann.

KÍ leggur fast að alþingi og stjórnvöldum að endurskoða og stækka tekjustofna sveitarfélaga með það fyrir augum að auka fjárveitingar til leikskóla og grunnskóla í samræmi við aukin verkefni og breyttar áherslur. 

Þetta er meðal þess sem kemur fram í ítarlegri umsögn Kennarasambands Íslands um tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun 2019–2023. Í umsögninni segir jafnframt að útgjöld til fræðslumála vegna leikskóla og grunnskóla, á árunum 2008 til 2017, hafi dregist saman sem hlutfall af vergri landsframleiðslu, að raunvirði og á hvern mann. Guðríður Arnardóttir, formaður FF, og Aðalheiður Steingrímsdóttir, fyrrverandi varaformaður KÍ, fóru á fund fjárlaganefndar í vikunni og kynntu umsögn Kennarasambandsins. 

Í umsögn KÍ er fjallað um hvernig opinber útgjöld til leik- og grunnskóla hafa lækkað á undangengnum árum.

„Á tímanum 2008 til 2017 lækkuðu opinber útgjöld til leikskóla sem hlutfall af vergri landsframleiðslu um 9,6%, að raunvirði um 8,0% og um 14,7% á hvern mann. Á sama tíma lækkuðu opinber útgjöld til grunnskóla sem hlutfall af vergri landsframleiðslu um 9,4%, að raunvirði um 7,5% og um 14,4% á hvern mann.

Mikill niðurskurður á framlögum hins opinbera til fræðslumála hefur bitnað harkalega á aðstæðum leikskóla og grunnskóla til að skipuleggja skólastarf í samræmi við stefnu um menntun fyrir öll börn, innviðir skólanna hafa veikst og starfsaðstæður versnað sem á stóran þátt í tíðum veikindum starfsfólks og brotthvarfi úr starfi.

Alþingi og stjórnvöld verða að snúa við blaðinu og láta af langvarandi fjárhagssvelti gagnvart skólunum svo hægt sé að blása til sóknar í menntamálum," segir orðrétt í umsögn KÍ. 


Framlög til framhaldsskólans
Gert er ráð fyrir að framlög til framhaldsskólastigsins verði hækkuð í samræmi við áherslur ríkisstjórnar í stjórnarsáttmála um að efla menntun í landinu, með sérstakri áherslu á verk- og starfsnám. 

„Skoðun á þessu leiðir í ljós að óverulegar hækkanir eru ráðgerðar á framlögum á fimm ára tímabili áætlunarinnar frá 2019 til 2023. Hins vegar má sjá á nýrri áætlun að ekki standi til að draga það fjármagn úr rekstri framhaldsskólanna sem sparast við styttingu námstíma til stúdentsprófs og er það vel.“

Gengið er út frá mikilli fækkun ársnemenda í viðurkenndum framhaldsskólum fram til 2020 vegna styttingar námsins í þrjú ár og fækkunar í árgöngum, samtals 2.618 ársnemendum eða 14,16%, sem leiðir til hærra framlags á hvern ársnemenda, að óbreyttum fjárframlögum. Það er vert að benda á að áætlunin felur hins vegar ekki í sér raunútgjaldaaukningu til skólastigsins,“ segir í umsögninni. Þar segir einnig að fram komi í fjármálaáætluninni að hækkun framlaga á hvern nemanda eigi að gera skólunum kleift að bæta gæði kennslu og námsframboðs, efla stoðþjónustu og endurnýja búnað og kennslutæki. KÍ telur vandséð að breyting af þessu tagi dugi til að byggja upp innviði skólanna eftir langvarandi fjársvelti. „Varðandi það markmið um að fleiri nemendur ljúki prófum á tilskildum tíma þá telur KÍ styttingu náms í framhaldsskólum hafa verið vanhugsaða framkvæmd frá upphafi. Stjórnvöld á þeim tíma fullyrtu að stytting námsins fæli í sér mikinn sparnað og að brotthvarf úr námi myndi minnka.“

Þá segir í umsögninni að framhaldsskólarnir hafi búið við langvarandi fjársvelti og árleg framlög á hvern nemanda hafi verið langt undir framlögum í þeim löndum sem við viljum bera okkur saman við. KÍ leggur fast að fjárlaganefnd að auka framlög til framhaldsskólanna á tímabili áætlunarinnar. 

Taka þarf menntun nemenda af erlendum uppruna föstum tökum
KÍ telur það alvarlega stöðu að mikill skortur er á samstarfi og samræmdri stefnu hér á landi um málefni nemenda af erlendum uppruna. „Ekki er fyrir hendi nein stefna af hálfu alþingis og stjórnvalda með hvaða hætti skuli standa að menntun og skólagöngu nemendanna né heldur varðandi stuðning við kennara og skólastjórnendur til að auðvelda þeim að sinna menntun þeirra sem best. Þau ráðuneyti sem koma að málefnum nemenda af erlendum uppruna verða að láta af því að vísa hvert á annað og axla sameiginlega ábyrgð á menntun og farsæld nemendanna og hafa samstarf við KÍ, sveitarfélög og skóla um útfærslu stefnu og aðgerða á grundvelli hennar.“

Um stöðu íslenskrar tungu
KÍ skorar á Alþingi og stjórnvöld að tryggja stöðu íslenskrar tungu í skólakerfinu og samfélaginu með miklu markvissari hætti en gert er ráð fyrir í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Staða íslenskrar tungu sé brothætt og snúa þurfi vörn í sókn. Sífellt fleiri kennarar stígi fram og greini frá námserfiðleikum nemenda vegna dalandi málskilnings og orðaforða – og staðfesti rannsóknir þessa þróun. „Alþingi og stjórnvöld verða að bregðast við þessari stöðu af festu og myndugleika og hafa forystu um almenna vitundarvakningu í samfélaginu um nauðsyn þess að styrkja stöðu tungunnar á öllum sviðum,“ segir í umsögn KÍ. 

Þá er í umsögninni einnig fjallað um náms- og starfsráðgjöf og námsgögn. 

Umsögn KÍ í heild.