KÍ fordæmir breytingar á lögum um lífeyrisréttindi
Fréttir|18. apríl 2018
Ályktun þessa efnis var samþykkt einróma á 7. Þingi Kennarasambands Íslands sem fram fór á Hilton Nordica í síðustu viku.
Kennarasamband Íslands fordæmir þau svik sem áttu sér stað á Alþingi Íslendinga þegar breytingar á lögum um lífeyrisréttindi opinberra starfsmanna voru samþykkt á Alþingi í desember 2016 í óþökk BHM, BSRB og KÍ sem og fjölda stéttarfélaga utan bandalaga. Ályktun þessa efnis var samþykkt einróma á 7. Þingi Kennarasambands Íslands sem fram fór á Hilton Nordica í síðustu viku.
KÍ krefst þess að lögunum verði breytt í fyrra horf, þannig að áunnin lífeyrisréttindi sjóðsfélaga í A-deild Lífeyrissjóðs opinberra starfsmanna (LSR) og Lífeyrissjóði sveitarfélaga (LSS) séu að fullu tryggð.