KÍ boðar trúnaðarmenn á fræðslunámskeið

Markmið námskeiðsins er að efla trúnaðarmenn í störfum sínum og þekkingu þeirra á réttinda- og hagsmunamálum félagsmanna. Athugið að fræðsla KÍ fyrir trúnaðarmenn snýst um sameiginleg réttinda- og hagsmunamál en ekki um kjarasamninga og starfsemi aðildarfélaga KÍ því viðkomandi félag sér um þá fræðslu.
Fræðslunefnd Kennarasambands Íslands efnir til fræðslunámskeiðs fyrir nýja og nýlega trúnaðarmenn þriðjudaginn 25. september næstkomandi. Námskeiðið verður haldið á Grand Hótel Reykjavík og stendur frá klukkan 10 til 15.
Markmið námskeiðsins er að efla trúnaðarmenn í störfum sínum og þekkingu þeirra á réttinda- og hagsmunamálum félagsmanna. Athugið að fræðsla KÍ fyrir trúnaðarmenn snýst um sameiginleg réttinda- og hagsmunamál en ekki um kjarasamninga og starfsemi aðildarfélaga KÍ því viðkomandi félag sér um þá fræðslu.
Á námskeiðinu verður fjallað um skipulag og starfsemi KÍ, réttindi og skyldur trúnaðarmanna, ráðningarmál og réttindi, fæðingarorlof, veikindarétt, orlof og fleira.
Námskeiðið verður sent út í streymi, á vefnum Netsamfélagið, og er hægt að fylgjast með því í hvaða nettengdri tölvu sem er. Þeir sem velja þennan kost geta sent fyrirspurnir og ábendingar til fundarstjóra meðan á námskeiðinu stendur.
Trúnaðarmenn eru beðnir um að skrá sig strax á námskeiðið á slóðinni sem finna má hér. Námskeiðsgögn verða aðgengileg á netinu og eru trúnaðarmenn beðnir að hafa með sér fartölvur. Trúnaðarmenn eru beðnir um að gera skólastjórnendum grein fyrir fjarveru vegna námskeiðsins.
{tabulizer:include style[gr.alterora.elemental_2_grey.css] id[tab_HgnccvYwJN]}
DAGSKRÁ
Kl. 09:30-10:00
Mæting, morgunhressing og setning.
Kl. 10:00-10:30
Skipulag og starfsemi KÍ.
Steinunn Inga Óttarsdóttir, fræðslunefnd KÍ.
Kl. 10:30-11:00
Réttindi og skyldur trúnaðarmanna.
Anna María Gunnarsdóttir, fræðslunefnd KÍ.
Kl. 11:00-11:20
Ferlar um einelti, ofbeldi, áreitni.
Sigrún Birna Björnsdóttir, sérfræðingur KÍ í vinnuumhverfis og jafnréttismálum.
Kl. 11:20-11:40
Kynning á sjóðakerfi KÍ.
Ólöf S. Björnsdóttir, þjónustustjóri sjóða KÍ.
Kl. 11:40-12:00
Fræðsla og fræðsluefni á miðlum KÍ.
Arndís Þorgeirsdóttir, sviðstjóri upplýsinga- og kynningasviðs.
Kl. 12:15-13:15
Hádegisverður.
Kl. 13:15-14:15
Fæðingarorlof, veikindaréttur og orlof.
Guðjón Ágúst Gústafsson, þjónustufulltrú á félagssviði KÍ.
Kl. 14:15-14:45
Ráðningarmál og réttindi.
Anna Rós Sigmundsdóttir, lögfræðingur KÍ.
Kl. 15:00
Fundarlok.