KÍ boðar frambjóðendur á opinn fund um menntamál

Fréttir|14. nóvember 2024

Kjósum um framtíðina – fjárfestum í kennurum! Svo hljóðar yfirskrift opins fundar KÍ um menntamál. Boð hefur verið sent til stjórnmálaflokkanna sem bjóða fram á landsvísu.

Kennarasambandið hefur sent boð til stjórnmálaflokka, sem bjóða fram á landsvísu, um að senda fulltrúa til samtals á opnum fundi. 

Fundurinn fer fram í Skriðu Menntavísindasviðs við Stakkahlíð næsta þriðjudag, frá 17 til 19. 

Frambjóðendur munu sitja í pallborði og svara spurningum Kennarasambandsins og gesta í sal. 

Flokkarnir sem fengu boðsbréf eru Flokkur fólksins, Framsóknarflokkurinn, Lýðræðisflokkurinn, Miðflokkurinn, Píratar, Samfylking, Sjálfstæðisflokkurinn, Sósíalistaflokkurinn, Viðreisn og Vinstri hreyfingin grænt framboð.

Við hvetjum félagsfólk til að fjölmenna á fundinn.