KÍ ályktar um boðaðan niðurskurð í framhaldsskólum

Fréttir|18. september 2014

Kennarasamband Íslands hefur sent frá sér ályktun vegna fjárlagafrumvarps 2015. Í ályktuninni harmar KÍ að enn skuli þrengt að rekstri framhaldsskólalanna með áframhaldandi niðurskurði. Rekstur framhaldsskóla landsins sé löngu kominn að þolmörkum. 

Ályktunin er svohljóðandi: 

Reykjavík, 18. september 2014

„Stjórn Kennarasambands Íslands harmar að í fjárlagafrumvarpi ársins 2015 skuli enn vera þrengt að framhaldsskólum landsins og aðgengi ungs fólks að námi skert.

Rekstur framhaldsskóla landsins er fyrir löngu kominn að þolmörkum. Það skýtur því skökku við að á sama tíma og stjórnvöld afþakka tekjustofna er boðaður áframhaldandi niðurskurður í skólakerfinu.

Til að ná þessum markmiðum er meðal annars gert ráð fyrir 5% fækkun nemenda í framhaldsskólum og skert aðgengi 25 ára og eldri nemenda að námi á framhaldsskólastigi. Styrkur íslenska framhaldsskólans hefur falist í sveigjanlegum námstíma og aðgengi. Þessi stefna boðar gjörbreytingu á menntapólitík í landinu.

Verði af þessum áformum er ljóst að markmiðum um að hækka hlutfall þeirra sem ljúka framhaldsskólaprófi verður ekki náð. Stjórn KÍ fordæmir þann viðsnúning sem virðist vera í uppsiglingu.“