Keppnin um besta tónlistarmyndbandið í fullum gangi
Félag leikskólakennara og Félag stjórnenda leikskóla standa þessa dagana fyrir keppni um besta tónlistarmyndbandið. Tilefnið er Dagur leikskólans sem verður fagnað 5. febrúar næstkomandi.
FL og FSL hvetja leikskólakennara, leikskólastjóra og starfsfólk leikskólanna til virkja sköpunarkraftinn og taka þátt í þessari skemmtilegu keppni. Markmið keppninnar er að vekja athygli á starfi leikskólanna með fjörlegum hætti. Efnisvalið er frjálst en hvert myndband má þó ekki vera lengra en sem nemur þremur mínútum.
Skipuð hefur verið dómnefnd landsþekktra listamanna en þau Snæbjörn Ragnarsson (Bibbi í Skálmöld), Saga Garðarsdóttir og Salka Sól munu velja bestu myndböndin. Veitt verða þrenn verðlaun; fyrir besta myndbandið, frumlegasta myndbandið og skemmtilegasta myndbandið. Bestu myndböndin verða sýnd í Bíó Paradís á Degi leikskólans 5. febrúar.
Hvernig á að skila myndbandi?
Best er að hlaða myndböndunum upp á Vimeo eða YouTube en gæta verður þess að hafa aðgang að þeim læstan. Síðan þarf að senda slóð, lykilorð og aðrar upplýsingar í tölvupósti á netfangið utgafa@ki.is.
Einnig er hægt að senda myndböndin sem Mp4-skrá í tölvupósti og eða koma með myndböndin á minnislykli í Kennarahúsið.
Skilafrestur er 15. janúar 2016.