Kennurum og starfsfólki skóla boðinn örvunarskammtur

Þeir sem fengu Jansen bóluefni eiga kost á öðru bóluefni í næstu og þarnæstu viku.
Ákveðið hefur verið að bjóða kennurum og starsfólki skóla, sem fengu bóluefnið Jansen í vor, örvunarskammt. Boðið verður upp á bóluefni frá Pfizer/BioNTeck. Frá þessu er greint á vef Heilsugæslunnar.
Þetta er gert að tillögu sóttvarnalæknis.
Það þurfa minnst 28 dagar að hafa liðið frá Jansen bólusetningu til að fólk geti mætt í örvunarskammt. Bólusett verður dagana 3. til 13. ágúst á Suðurlandsbraut 34.
Fólk er beðið um að koma sem hér segir:
Kennarar og starfsfólk skóla fætt:
Mæta:
Janúar og febrúar
3. ágúst
Mars
4. ágúst
Apríl
5. ágúst
Maí
6. ágúst
Júní
9. ágúst
Júlí
10. ágúst
Ágúst
11. ágúst
September og október
12. ágúst
Nóvember og desember
13. ágúst
„Bólusett er frá klukkan 11 til 16. Fólk er beðið að koma eftir því hvenær í mánuðinum það er fætt. Þannig að þau sem eru fædd í fyrstu viku mánaðarins koma klukkan 11, þau sem eru fædd í annarri viku koma klukkan 12, þau sem eru fædd í þriðju viku koma klukkan 13 og þau sem fædd eru í síðustu viku mánaðar mæta klukkan 15," segir á vef Heilsugæslunnar.
Boð verða ekki send út í þessar bólusetningar en allir eru beðnir um að hafa meðferðis eldra strikamerki um boð í bólusetningu. Þá skiptir ekki máli í hvaða efni eða dag boðað var.