Kennurum boðið fjarviðtal við sálfræðing

Fréttir|14. október 2020

KÍ í samvinnu við menntamálaráðherra býður kennurum og skólastjórnendum upp á sálfræðiþjónustu á tímum COVID-19.

Álag, streita og kórónukvíði er farinn að segja til sín hjá fólki í framlínu og finnst forystu kennara ásamt ráðherra menntamála rétt að koma til móts við kennara og stjórnendur eins og hægt er. Um er að ræða einn 50 mínútna fjartíma hjá sálfræðingum á Höfðabakka 9.

Ferlið er einfalt. Best er að skrá sig í þetta skjal og ritarar sálfræðistofunnar munu hafa samband fljótlega.

 

Skráning.