Kennsluhættir og námsmat

Fréttir|4. apríl 2016

Nýjasta umræðuhefti Skólamálaráðs KÍ hefur að geyma umfjöllun um kennsluhætti og námsmat

Skólamálaráð KÍ sendi frá sér Umræðuhefti um menntamál í janúar á þessu ári. Tilefni samantektarinnar er stefna í menntamálum hér á landi eins og hún birtist í hvítbók menntamálaráðherra um umbætur í menntun, tillögum um aðgerðir og ákvörðunum um framkvæmd. Þá var jafnan greint frá því að í framhaldinu yrði vakin sérstök athygli á einstökum þáttum heftisins. Í febrúar fengu félagsmenn KÍ sent heft um læsi, í mars var fjallað um starfsmenntun og um námstíma í apríl. 

Nú er röðin komin að kennsluháttum og námsmati. 

Skólamálaráð hvetur félagsfólk til að kynna sér umræðuheftið og stuðla að umfjöllun um það. Skólamálaráð fagnar öllum ábendingum og þönkum um efnið. Pistlar sem berast verða birtir í miðlum KÍ.

Umræðuhefti Skólamálaráðs KÍ um kennsluhætti og námsmat.

Hér má finna Umræðuheftin og bréf sem hafa verið send til trúnaðarmanna og formanna svæða- og félagsdeilda.